Vikan


Vikan - 30.11.1999, Blaðsíða 54

Vikan - 30.11.1999, Blaðsíða 54
-vi [J Kæri Póstur Ég á 9 ára gamlan son sem hefur alltaf verið áhugasamur í skólanum og verið yfir meðallagi í einkunnum. Nýlega hefur hann þó dregist aftur úr í bekknum sínum og það gengur erf- iðlega að halda honum að heimavinn- unni. Eg hef áhyggjur af þessu og ég veit að hann er ekki sáttur við þetta sjálfur. Hann pirrast mikið þegar ég er að reyna að fá hann til að gera heima- vinnuna sína og hann virðist ekki hafa trú á getu sinni. Ég er nýbyrjuð að vinna íullan vinnudag og hef ekki get- að gefið mér sarna tíma og áður til að sýna námi hans áhuga eða aðstoða hann. Hvað er til ráða? Áhyggjufull móðir Ka?ra áhyggjufulla moðir Ég myndi telja ráðlegt að tala við kennara drengsins því að hann er í bestu aðstöðunni til að vita hvernig drengnum gengur í nánrinu. Það er oft í kringum þennan aldur að börn fá límabundna leið á heimanáminu og viðkomandi kennari lumar örugglega á góðum ráðum til þess að hressa upp á áhugann. Það sem þú getur sjálf gert til að hjálpa til er að sýna námi hans aukinn áhuga. Heimilislíf riðlast oft fyrst um sinn þegar breytingar verða á vinnu- tíma foreldra og þið ættuð að leitast við að aðlagast breyttum tímum eflir bestu getu. Það er nauðsynlegt að gefa sér tíma til að ræða málin og með því móti er mögulegt að komast að samkomulagi um ýmislegt sem lýtur að bæði heimanámi og frístundum barnanna. Jákvæð hvatning er ávallt af hinu góða og það mun örugglega bera árangur ef þú hvetur drenginn. Þú gætir verðlaunað hann þegar hann sýnir heimanáminu áhuga eða bara þegar hann sinnir því, þótt það sé með dræmu móti. Börnum finnst mjög gaman þegar foreldrar fylgjast vel með framgangi náms þeirra. Sér- staklega finnst þeim vænt um þegar 54 Vikan 0i„ foreldrar eða eldri systkini „taka þátt" í heimanáminu. Það má þó ekki læra fyrir börnin í bókstaflegri merk- ingu en með því að vera virkur í að- stoð og sýna áhuga, hvetur þú örugg- lega drenginn þinn til frekari dáða. Kæri Póstur Ég er búin að vera í sambandi með rnanni sem ég er mjög hrifin af í þrjú ár. Okkur líður rnjög vel saman og elskum hvort annað. Upp á síðkastið hefur hann fært í tal að hann vilji giftast mér en það er skref sem mér finnst ég ekki vera reiðubúin til að taka. Ég er ekki fullkom- lega sannfærð um að ég vilji eyða ævinni með honum. Hann er hissa og sár yfir þessum viðbrögðum mínum. Hvernig get ég unnið úr þess- um tilfinningum? Björg Kæra Björg Það er stór og mikil ákvörðun sem liggur að baki því að ganga í hjóna- band og því ósköp eðlilegt að þú sért hikandi. Það ætti enginn að gifta sig nema að mjög vandlega athuguðu máli. Það fer líka töluvert eftir aldri þínum en ef þú ert mjög ung þá er lík- legasl best að leyfa sambandinu að þróast leng- ur. Ef þið búið ekki saman, þá væri ekki úr vegi að hefja sam- búð með það fyrir augum að láta reyna enn betur á samband ykkar. Þú þarft að ræða þessa hræðslu þína opin- skátt og af hreinskilni við kærasta þinn svo að hann líti ekki á þessa af- stöðu þína sem höfnun. Sumir trúlofa sig og líta á það sem eins konar reynslutíma og í þínu tilfelli gæti það verið ágætis hugmynd á meðan þú ert að komast að endanlegri niður- stöðu. Þú ert ekki ein um að upplifa hræðslu gagnvart skuldbindingu sem er fyrir lífstíð og það er ör- ugglega algengara en fólk ger- ir sér grein fyrir. Þeirri ákvörðun að ganga í hjóna- band fylgir mikil ábyrgð og er fjarri því að vera einhver 1 prinsessudraumur sem snýst um hvíta blúndukjóla og veisluhöld. Vissulega er sjálfur brúðkaupsdag- urinn baðaður rómantísk- um ljóma en það er bara óraunsær tákngerfingur hjóna- bandsins. Þegar þú telur þig vera fullvissa um að þú viljir búa með manninum og deila með honum gleði og sorg í lífinu, þá ertu tilbúin til að ganga í hjónaband. Kærasti þinn virð- ir örugglega ákvörðun þína um lengri umhugsunarfrest, sérstaklega ei'þú gerir honum grein fyrir hversu alvar- lega þú tekur þessurn nrálum. Spurningar má senda til „Kæri Póstur“ Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Farið er með öll bréf sem trúnaðarmál og þau birt undir dulnefni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.