Vikan - 30.11.1999, Blaðsíða 49
u
Ui Izj
1rjOlí!J\0&J^
kjjif
VIÐ ENDA REGNBOGANS
Sagt er að við enda regnbogans sé
falinn fjársjóður. í hugaVillu,
skondinnar og skemmtilegrar, 9 ára
stelpu, er fjársjóðurinn í lífi hennar
fólginn í því að mömmu hennar batni
og að hún geti keypt gjöf sem gleðji
hana. Síðast en ekki síst langar hana
til að eignast kanínu.
Margt skemmtilegt drífur á daga Villu
og vina hennar en ekki eru öll
uppátæki þeirra vel séð og
spurningin er hvortVilla lendir á
Óþekktarbarnaheimilinu eða hvort hún kemst að enda
regnbogans án þess jafnvel að vita af því sjálf.
Þetta er fjórða barnabók Helgu Möller. Hún hefur hlotið
mikið lof fyrir fyrri bækur sínar, enda setur hún sig vel inn
í hugarheim persóna sinna og hefur næman skilning á
vonum þeirra og viðhorfum.
Ólafur Pétursson myndskreytti bókina.
LEYNDARMALIÐ I KJALLARANUM
Skemmtileg spennusaga um
fimm krakka í Reykjavík. Heima
hjá einum þeirra er dimmur og
dularfullur kjallari sem hefur margt furðulegt að geyma,
m.a. grímu sem á eftir að koma við sögu í lokaköflum
bókarinnar þegar innbrotsþjófar ráðast inn í húsið og
þjarma að krökkunum. En þegar illa horfir kemur heldur
betur óvæntur bjargvættur til sögunnar.
Fyrsta barnabók Steinunnar
Hreinsdóttur, flugfreyju og
magisters í norrænum
bókmenntum, með
myndskreytingum eftir Jóhönnu,
tvíburasystur hennar.
[f
FRÓDI