Vikan - 30.11.1999, Side 24
Texti: Hrund Hauksdóttir
regiurnar
Kropíð á kné fyrir forsetanum
Það eru í raun aðeins tvær leiðbeinandi reglur
fyrir konur sem lúta að kynlífssamskiptum við
karlmenn. Hin heimsfræga fröken Monica
Lewinsky braut bær báðar á klaufalegan máta
og allir bekkja útkomuna. Hér förum við í gegn-
um mistök dömunnar.
Úfagmannlegt ástar-
samband við Banda-
ríkjaforseta
Feluleikurinn með vindil-
inn og bláa kjóllinn með
blettinum í var auðvitað al-
gjört klúður af forsetans og
Monicu hálfu. Á því leikur
enginn vafi. En Monica hef-
ur borið því fyrir sig að hún
hafi lært allt um kynlíf og
samskipti við karlmenn af
lestri bandarískra glanstíma-
rita. Vissulega hefur glað-
legt viðmót hennar og smit-
andi hlátur verið það sem
fangaði athygli Clintons og
það getur vel verið að hún
hafi lumað á góðum ráðum
úr stelpublöðunum. En því
meiri upplýsingar sem við
fáum um Monicu, bæði úr
skýrslu
Kenneth
Starr og ævi-
sögu hennar
sjálfrar, því
sannfærðari
verðum við um hversu
barnalega og ófagmannlega
hún hagaði sér í þessu leyni-
lega ástarsambandi við
Bandaríkjaforseta. Flún var
uppáþrengjandi og stundum
móðursjúk í stað þess að
vera yfirveguð. Hún blaðr-
aði á óábyrgan hátt við fólk
um þetta viðkvæma mál í
stað þess að hafa vit á því að
þegja. Það er þvf óhætt að
segja að Monica greyið hafi
ekki verið huguð og óttalaus
heldur hagaði hún sér á
kjánalegan máta.
Hér til gamans koma regl-
urnar tvær sem Monica
hefði átt að halda í heiðri:
1 Hressar og hugaðar
konur eiga rétt á frá-
bæru kynlífi og
skemmtilegu lífi
Bill Clinton hafði rétt fyrir
sér þegar hann sagði að það
teldist ekki til kynlífs að
vera með buxurnar á hælun-
um. Það telst alla vega seint
vera fjörugt kynlíf. Hressar
og hugaðar konur eru heil-
brigðir lífsnautnaseggir. Þær
vita að kynlíf þeirra getur og
á að vera frábært og þær
taka ekki þá áhættu að eyði-
leggja líf sitt með einni ferð í
bólið. Þegar þessar konur
verða varar við að kynlífið
gefur þeim ekkert eða er
hreinlega óviðeigandi (t.d.
framhjáhald), þá hafa þær
skynsemi til að draga sig í
hlé.
Monika Lewinsky missti
hins vegar sjónar á siðgæði
nútímakonunnar inni á
einkaskrifstofu Bandaríkja-
forseta. Hún missti tökin
þegar í upphafi sambands-
ins. Jú, jú,
auðvitað
þurfti
ákveðið
hugrekki til þess að
fækka fötum fyrir forsetann,
en að krjúpa á kné og
„þjóna" hinum háa herra
eins og hún gerði er merki
um að hún hefði óvanalega
lágt sjálfsmat. Auk þess átti
hún svo að segja engin sam-
skipti við forsetann fyrir
utan í svefnherberginu. Eða
í skrifstofunni, réttara sagt.
Hugaðar konur sem hafa
gott sjálfsmat sitt á tæru
forðast gifta menn eins og
heitan eldinn. Þær hafa ekki
hug á að eyða dýrmætum
tíma sínum til spillis. Þær
leggja meiri áherslu á vinnu
sína en að slefa yfir ein-
hverjum sætum starfsfélög-
um (hvort sem þeir eru for-
setar eða ekki), þær eiga
vinkonur sem myndu aldrei
láta sig dreyma um að taka
einkasamtöl upp á segul-
band og líta einungis við
karlmönnum sem setja þær í
fyrsta sæti í lífi sínu, eins og
þær eiga auðvitað skilið.
Það þarf engan snilling til
þess að átta sig á að Bill
Clinton hefði aldrei getað
veitt Monicu þá umhyggju,
ást og athygli sem hún
þarfnaðist. Þau vonbrigði
hennar urðu þess valdandi
að hún varð enn óöruggari
með sjálfa sig og hegðaði sér
óskynsamlega.
Hún fékk aldrei það sem
hún vildi út úr samskiptun-
um við buxnalausa forset-
ann með vindilinn.
2 Hressar og hugaðar
konur vita hvenær
bær eiga að draga sig
ihlé
Hressar og hugaðar konur
eru að sjálfsögðu ekki
ónæmar fyrir dálitlu dóm-
24 Vikan