Vikan - 30.11.1999, Síða 29
■Qne
ane
Anna Sui
er hcinis-
frægur „Avant
Garde“ hönnuð-
ur og eitt af stóru
nöfnunum í dag. Hún
er hæfileikaríkur hönn-
uður sem er margt til lista
lagt og hannar m.a. föt, skó,
skartgripi, töskur, brúður og snyrtivörur. I tísku Önnu Sui gætir
mikilla áhrifa frá rokk- og blómatímabilinu enda eru litagleði
og óvenjulegar litasamsetningar helsta aðalsmerki hennar. Ilm-
urinn hennar, „Anna Sui“, er blóma-, ávaxta- og púðurkenndur.
Ilmvatnið er mjög aðlaðandi og flaskan er sannkölluð ævin-
týraflaska sem er eins og spegill. Heiðurinn af hönnun flöskunn-
ar á hinn heimsfrægi hönnuður Tierry de Baschmakoff. Þetta er
ilmvatn fyrir vandláta. J
Bogense
nuddsápan er þeim eiginleikum gædd að fjarlægja dauð-
ar húðfrumur og hreinsa húðina mjög vel. Notkun henn-
ar hjálpar einnig til við að vinna bug á appel-
sínuhúð sem er hvimleitt vandamál hjá fjöl-
mörgum konum. Með reglubundinni
notkun Bogensen sápunnar styrkist
líka og stinnist liúðin. Sápan er
framleidd úr náttúrulegum efn-
um og eykur raka í húðinni.
Versace förðunarlínan er ein-
staklega glæsilcg. Auk þess
sem snyrtivörurnar eru mjög
vandaðar og endingargóðar þá
eru umbúðirnar hreinasta augna-
yndi. Haust- og vetrarlínan fyrir
1999-2000 kallast Versace Glam
og vísar til kvenleika og ögrandi
þokka nútímakonunnar sem er á
hraðri leið inn í nýja öld.
Japanska fyrirtækið KANE-
BO varð fyrst allra snyrtivöru-
framleiðenda í heiminum til
að framleiða púðurfarða.
Farðinn er líka með kuldavörn
og sólvarnarstuðli nr. 13, sem
ver húðina gegn útfjólubláum
geislum sólarinnar. Andlits-
farðinn í Exclusive Bio línunni
er til í nokkrum gerðum en
mismunandi er hvað hentar
hverjum. Förðunarvörur
KANEBO eru mjög rakagef-
andi og næra húðina samhliða
því að vernda hana gegn utan-
aðkomandi áreiti. Púðurfarð-
inn þekur vel. Hann gefur
húðinni silki-
mjúka áferð
og einkar —
fallegan lit. I