Vikan - 30.11.1999, Blaðsíða 46
f r a m h a l d s s
En hertoginn hafði sagt við
móður sína: Þetta þýðir ekk-
ert mamma. Eins og er get
ég ekki hugsað mér að vera
bundinn einhverri konu sem
kemur mér til að geyspa í
hvert sinn sem hún opnar
munninn. Þú veist það sjálf
að allar konurnar sem mér
finnst eitthvað spunnið í eru
þegar giftar.
Já, ég veit það, sagði her-
togaynjan, og ég óska mér
einskis frekar en að þú verð-
ir hamingjusamur. Hins veg-
ar gæti ég ekki hugsað mér
neitt yndislegra en að fá að
halda litlum sonarsyni mín-
um í fangi mér.
Það er nógur tími til
stefnu, hafði hertoginn sagt.
Eg lofa þér því að fara að
huga að giftingu þegar ég er
kominn á rniðjan aldur. Her-
togaynjan hafði ætlað að
fara að mótmæla því að
þurfa að bíða svo lengi, her-
toginn hafði þaggað niður í
henni með því að segja: Ég
neyðist til þess að yfirgefa
þig, mamma. Það bíður eftir
mér fögur meyja! Hertoga-
ynjan hafði hlegið vegna
þess að henni fannst þessi
sonur hennar óforbetranleg-
ur og þar að auki vissi hún
um hvaða konu var að ræða.
Hertoginn hafði farið áður
en hún gat sagt meira.
Þegar hann nú horfði á
listann sem hann hélt á í
hendinni var hann viss um
að allar þessar þrjár konur,
sem móðir hans hafði valið,
væru ungar, uppburðarlitlar
og trúlega einnig illa upp-
lýstar. Hann hafði svo oft
séð vini sína ganga í hnapp-
helduna með þannig konum.
Hann varð hins vegar að
viðurkenna að eitt áttu þess-
ar konur sameiginlegt. Eftir
að hafa búið utan borgar-
innar með eiginmanni sínum
og eignast son og e.t.v. tvö
eða þrjú börn þar að auki
urðu þær að þessum fögru,
andríku heimsborgurum
sem hann átti svo auðvelt
með að falla fyrir. Það var
ekki nokkur leið að skilja
hvernig þetta gerðisl. En
þetta var nú samt sem áður
staðreynd og nú gerði hann
sér grein fyrir því að líklega
hefði Hermione einhvern
tíma verið feimin og klunna-
leg. Hann viðurkenndi fyrir
sjálfum sér að ef hann hefði
gifst henni meðan hún var
ung og óreynd hefði hann
fyrir löngu verið byrjaður að
líta í kringum sig eftir ást-
konu.
Hann rétti móður sinni
listann. Ég geri ráð fyrir því
að þetta sé eina leiðin, sagði
hann.
Ef það er til önnur leið
kem ég alla vega ekki auga á
hana, svaraði hertogaynjan.
Ég man vel nóttina fyrir
fimm árum þegar George
Wallington særði mann
nokkurn svo illa að það varð
að taka af honum handlegg-
inn.
Ég hafði ekki hugmynd
um það! sagði hertoginn.
Ég held að þú hafir verið
erlendis, sagði hertogaynjan.
Þetta var líka frekar ómerki-
legur maður svo málið var
þaggað niður og gleymdist
fljótlega.
Það fór hrolllur um hana
og hún sagði: Ég gæti ekki
afborið það, kæri Kenyon,
ef eitthvað þess háttar kæmi
fyrir þig.
Hertoginn gekk að glugg-
anum og horfði yfir garðinn.
Hverja líst þér best á af
þessum þremur? spurði
hann reiðilega.
Hertogaynjan þagði um
stund en sagði svo: Að mínu
mati er Beryl Wood falleg-
ust þeirra. Hún er dökk yfir-
litum, og ég gæti trúað því
að þér þætti hún myndarleg.
Hertoginn vissi að hún
vísaði til þeirrar staðreyndar
að Hermione var með ljóst
hár sem hún var mjög stolt
af. Hún var oft kölluð
„enska rósin".
Deborah Hurst er ekki
eins fríð, hélt greifynjan
áfram. En ég hef heyrt að
hún sé mjög skemmtileg og
Sarah Corde er rauðhærð
eins og mamma hennar, sem
er gömul og góð vinkona
mín.
Þér líst, með öðrum orð-
um, best á Sarah Corde,
sagði hertoginn ákveðinn.
Ég hef það á tilfinning-
unni að markgreifinn, faðir
hennar, sé ekki mjög hrifinn
af þér, sagði greifynjan. En
það er nú einungis vegna
þess að hestarnir þínir koma
undantekningarlaust á und-
an hestunum hans í mark og
þar sem hann er hégómlegur
og metnaðarfullur á hann
erfitt með að kyngja því.
Hertoginn brosti. Hann
varð alla vega æfareiður í
síðustu viku á Epsom þegar
hesturinn minn vann hans
hest á síðustu sekúndunum!
Þú verður að gæta þess í
framtíðinni að vera tillits-
samur og taka ekki þátt í
veðreiðum sem hann vill
gjarnan vinna.
Já, ég væri fúsari til þess
en að giftast dóttur hans!
sagði hertoginn lágt, eins og
S T A
Internetaðgangur til 01.01.20D0
á aðeins kr. 2000/
"Inrifalið í ofangreindu verði er
uppsetningarhugbúnaður, innhringiaðgangur,
» eitt póstfang, 3Mb heimasíðusvœði,
160Mb gagnaflutningur/mán. til 01.01.2000
Tæknlgarðl - Dunhaga 5-107 Reyk)avík
Síml: 525 4468 - Fax: 552 8801 - lnfo@vortex.ls
46 Vikan