Vikan - 30.11.1999, Side 56
Hundelt
|u e r a n d i e I s k
A f f
g var bara sautján
ára þegar ég
kynntist Inga.
Hann var sjö
árum eldri en ég en við urð-
um samt mjög ástfangin
hvort af öðru. Við vorum
bæði í námi á þessum tíma,
hann var utan af landi og
leigði herbergi í Reykjavík
og við hittumst þar eins oft
og ég gat komist allan vetur-
inn. Eg bjóst alltaf við því
að við yrðum hjón, en
þannig endaði þessi ástar-
saga auðvitað ekki. Hann
fór norður að vinna um
sumarið og þegar hann kom
til baka hafði alll breyst.
Honum hefur etlaust fundist
ég mikið barn og hann hafði
fundið aðra fyrir norðan,
konu jafngamla sér. Ég lagð-
ist í ástarsorg, en eins og
gengur með átján ára stelp-
ur var ég fljót að jafna mig,
ég hafði nóg að gera og
þekkti margt fólk og fyrr en
varði var ég búin að gleyma
honum.
Hjónaband sem endaði
með skilnaði
Ég lauk náminu og strax eft-
ir útskriftina giftist ég strák
sem ég elskaði mikið. Við
eignuðumst tvö börn og
hjónaband okkar var að
mörgu leyti mjög gott. Við
ferðuðumst mikið saman,
vorum góðir félagar og átt-
um fallegt heimili.
Það eina sem vantaði var að
við gætum rætt vandamálin
og á endanum eyðilagði
þessi fötlun hjónabandið.
56 Vikan
y
Við fórum að ríi'ast yfir
minnstu smáatriðum og til
þess að forðast rifrildin
þögðum við stundum heilu
dagana og söfnuðum sorg og
þykkju í hjörtu okkar.
Ekkert hjónaband stenst
þetta til lengdar og eftir 11
ára hjónaband gáfumst við
upp og skildum. Sennilega
var þessi skilnaður óþarfur,
það sá ég eftir á. Þessu
hjónabandi hefði vel mátt
bjarga ef einhver með skiln-
ing og reynslu hefði fengið
tækifæri til að sýna okkur
hvað við vorum að gera
rangt.
Okkur þótti í raun mjög
vænl um hvort annað og
þess vegna var þessi skilnað-
ur mjög erfiður. Við gátum
hvorki verið saman né sund-
ur. Við vorum sífellt að strá
salti í sárin með því að hitt-
ast og jafnvel sofa hjá hvort
öðru eftir að við skildum og
það varð auðvitað til þess að
okkur leið báðum enn verr
og við vorum sundurtætt á
sálinni. Við vorum ekki að-
eins að svíkja okkur sjálf,
heldur líka börnin sem við
reyndum þó að láta aldrei
l'inna annað en að við vær-
um enn vinir þótt við byggj-
um ekki lengur saman.
En þessu varð að linna og
einn góðan veðurdag eftir
sársaukafullt uppgjör ákváð-
um við að hætta þessu og
skilja endanlega. Þeirri
ákvörðun fylgdi enn meiri
sársauki og ég var á barmi
algers niðurbrots.
Féll fyrir gömlum
draumi
En þá kom Ingi aftur inn í
líf mitt. Hann var enn giftur
sömu konunni (og er víst
enn í dag) en ekki getur
hjónaband hans hafa verið
gott. Hann sagðist aldrei
hafa getað gleymt mér, ég
væri í raun eina konan sem
hann hefði nokkurn tíma
elskað. Hann ætlaði greini-
lega að eignasl mig aftur.
Ég var tilfinningalegt flak á
þessum tíma og féll gersam-
lega fyrir skjallinu.
Ég var viss um að þetta hlyti
að vera gagnkvæmt. Ég var
alveg tilbúin til að gefa
þessu sambandi tækifæri til
að þróast aftur og við Ingi
fórum að vera saman. Strax
eftir að ég hafði eytt einni
nótt með honum fór ég þó
að efast og efinn magnaðist
eftir því sem við hittumst
oftar. Ég gat ekki fundið
þessa sterku ást aftur, ég var
mjög gagnrýnin, kannski
vegna þess að ég elskaði
manninn minn ennþá. Mér
fannst Ingi ekki nógu karl-
mannlegur í vextinum, ekki
nógu ákveðinn í skapi, ekki
nógu smekklegur í klæða-
burði og ekki nógu þetta
eða hitt. Ég fann honum allt
til foráttu.
Eftir að við höfðum hist
nokkrum sinnum og ég sofið
hjá honum þrisvar sinnum
sagði ég honum sannleik-
h u g a
ann; ég gæti ekki haldið
þessu áfram, ég elskaði
hann ekki og ég væri alls
ekki tilbúin til að binda
trúss mitt við einn eða neinn
eins og á stæði.
Ingi hvarf á braut aftur og líf
mitt hélt áfram. Þetta stutta
ævintýri hafi þó brotið ísinn,
það sannaði fyrir mér að
það var til líf án mannsins
míns fyrrverandi.
Arin liðu og ég giftist aftur.
Sá maður er mér allt. Eftir
fyrri mistök mín lærði ég að
maður verður að taka
ábyrgð á vandamálum sín-
um og ræða þau opinskátt
og finna lausnir. Við hjónin
höfum alltaf verið vinir og
félagar og alltaf þegar eitt-
hvað kemur upp er það
krufið strax til mergjar og
afgreitt. Við eigum vel sam-
an og þrátt fyrir margar
raunir sem við höfum geng-
ið í gengum erum við alltaf
jafn innilega ástfangin. Við
styðjum hvort annað þegar
þess gerist þörf, huggum
hvort annað, hlæjum saman,
skemmtum okkur, ferðumst
og elskum heimilið okkar og
börnin sem við eigum saman
og sitt í hvoru lagi. Við erum
þakklát forsjóninni fyrir að
hafa leitt okkur saman á
þann furðulega hátt sem
hún gerði.
Skugginn í lífi mínu
Þrátt fyrir þessa hamingju
ber einn skugga á líf mitt.
Það er Ingi. Ég hef í raun
aldrei losnað við hann og
kannski losna ég aldrei við
Eg fór strax að efast og efinn magnaðist eftir
huí sem uið hittumst oftar