Vikan - 09.05.2000, Síða 4
Kæri lesandi
(Hand)frjáls eða ekki
oksins þegar
átti að fara að
takmarka
notkun GSM-
síma í bílum við handfrjáls-
an búnað kom sú frétt að
einhver snillingurinn vœri
búinn að sanna að hand-
frjálsi búnaðurinn vœri enn
hœttulegri manninum en
hinn hefðbundni. Könnun
leiddi sum sé í Ijós að geils-
un frá þessum búnaði er
enn meiri en frá hefð-
bundnum GSM-símum.
Reyndar komu svo í kjöl-
farið afsannanir frá öðrum
og enginn veit lengur hverju
hann á að trúa.
En einhver hluti síma-
fíklanna varð kátur yfir
fyrri niðurstöðunum. Nú
vœri sko hægt að þenja sig
niðrí rassg.. yfirþví að
stjórnvöld ætluðu viljandi
að stráfella íslendinga með
því að láta þá „neyðast“ til
að steikja í sér heilann með
þessum handfrjálsa búnaði.
Þvílík mannvonska!
Enda varð allt vitlaust, ég
hlustaði m.a. á dagskrár-
gerðarmann á einhverri
tónlistarstöðinni hrópa sig
hásan yfir þessari vald-
níðslu yfirvalda, hann vildi
sko fá að tala í friði í sinn
venjulega gemsa í bílnum
sínum. Og hananú!
Ég skil manninn mœtavel.
Þ.e.a.s. miðað við að bíllinn
sé kyrrstœður eða einhver
annar undir stýri, en fólk
sem er að keyra á ekki að
vera með símann í annarri
hendi, blaðrandi við ein-
hver sem tekur þar að auki
athygli þess frá akstrinum.
Ég hefekkert vit á geislun
og satt best að segja finnst
mér það engu máli skipta
hversu mikil geilsun erfrá
þessum símanum eða hin-
um. Ég hefhins vegar nœga
reynslu úr umferðinni til að
hafa mjög eindregna skoð-
un á notkun GSM-síma í
bílum.
Sjálfer ég mikill GSM-not-
andi og ek langar vega-
lengdir á hverjum degi, en
ég segi samt: „Nei takk!“
Ég hefkomist afmánuðum
saman þótt ég svari aldrei
símanum áferð.
Þetta GSM-blaður bílstjóra
VERÐUR að banna og það
sem fyrst áður en það veld-
urfleiri óhöppum í umferð-
inni en orðið er. Sjálfer ég
búin að Itorfa upp á eitt al-
varlegt slys sem hlaust af
GSM-símanotkun og
margoft hefég orðið vör
við vœgast sagt ömurlegan
akstursmáta fólks sem hef-
ur verið að tala í símann
undir stýri, m.a. horfði ég í
vetur á bílstjóra með síma í
hendi aka upp á umferðar-
eyju!
Efmenn VERÐA að tala í
símann meðan þeir aka bíl-
um verða þeir að gera það
á kostnað heilabúsins í sér
efþví er að skipta, það er
fullkomlega óásættanlegt
að þeir hœtti lífi og limum
okkar hinnafyrir síma-
blaðrið! Svo gæti líka verið
athugandiað aka útíkant
efhœtta er á að menn séu
að missa afsímtali lífs síns,
eða hreinlega kíkja á núm-
erabritinn þegar ökuferð-
inni er lokið og hringja
til baka.
En Vikan er komin með
vor í hjarta. í blaðinu er
fullt affólki, fullt afsögum,
gríni, fróðleik og ráðlegg-
ingum. Byrjaðu að fletta og
njóttu Vikunnar.
Jóhanna Harðardóttir,
ritstjóri
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir, vikan@frodi.is.
Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, simi: 515 5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðviksson, simi: 515 5515.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, simi: 515 5512.
Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnúsdóttir,
Guðriður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir
vikanaugl@frodi.is.
Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson.
Verð i lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak.
Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf.
Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
Áskriftarsími: 515 5555