Vikan - 09.05.2000, Blaðsíða 48
Þýðing: Guðríður Haraldsdóttir
Þessir liljóta að vera sjúkir í ást.
Næst þegar þú finnur
til mikillar löngunar í
tiltekinn mat, bíddu við
og hugsaðu málið. Þú
gætir verið að mis-
skilja boð líkamans
sem hungrar í eitthvað
allt annað en mat.
Þú þekkir tilfinn-
inguna þegar þú
sérð fyrir þér
dökka, mjúka og
gómsæta
súkkulaðitertu. Hugsunin
hverfur ekki frá þér, þú verð-
ur að fá tertuna og það strax.
Halda má að þessi skyndi-
lega löngun í tiltekna tegund
matar komi frá maganum eða
tengist græðgi en svo er ekki.
Sérfræðingar hafa nú fundið
út að löngunin tengist frem-
ur tilfinningum okkar og
þetta sé engin græðgi.
Löngunin sem við fyllumst
er ekki líkamlegs eðlis held-
ur er hún kall eftir að tilfinn-
ingalegum þörfum okkar sé
fullnægt. En hvenær er hægt
að vita hvers konar hungur
þjakar okkur, líkamlegt eða
tilfinningalegt?
Tilfinningalegt hungur
kemur snögglega. Aðra mín-
útuna ertu ekki að hugsa um
mat en þá næstu fer þig að
langa sjúklega í einhvern til-
tekinn mat. Tilfinningalegt
hungur byrjar í huganum,
ekki í maganum. Líkami þinn
veit hvernig áhrif hver fæðu-
tegund hefur á líðan þína.
Fæðulöngun þín fær þig til að
borða þann mat sem hentar
hverjum kringumstæðum. Ef
andleg líðan þín er slæm sæk-
irðu í mat sem lætur þér líða
betur. Ef þú ert áhyggjufull/ur
sækir þú í mat sem róar þig.
Þessi löngun er merki þess að
líkami þinn sæki í andlegan
frið. Ef þú áttar þig á því í
hvaða mat þú sækir mest get-
ur þú áttað þig á því hvað það
er sem angrar þig og þú hef-
ur ekki horfst í augu við. Að
borða mat til að róa sig leys-
ir engin vandamál. Spyrðu
sjálfa/n þig að því hvað þú
getur gert til að laga kringum-
stæðurnar í lífi þínu.
Segðu bara, nei!
Næst begar löngunin kemur yfir big gæti betta hjálpað...
Kældu píg niður í korter Komdu pér Irá ísskápnum
Segðu við þig að þú ætlir ekki að Yfirgefðu heimili þitt ef þú þarft en haltu
borða næsta korterið. Þegar það er þig að minnsta kosti frá eldhúsinu þessar 15
liðið og löngunin er jafnsterk skaltu mínútur. Tilfinningalegu ofáti fylgir oft að þú
fá þér að borða. En á meðan á þess- borðar án þess að gera þér grein l'yrir rnagn-
um 15 mínútum stendur mun lyst þín inu sem þú innbyrðir. Stundum gætirðu þurl't
líklega komast á það stig að þú borð- að fleygja öllum matarafgöngum í ruslið til að
ar ekki yl'ir þig. koma í veg fyrir nart á milli mála.
X
48
Vikan