Vikan - 09.05.2000, Blaðsíða 58
Texti: Margrét V. Helgadóttir
betta er vondur
PMargir foreldrar iiekkja pá erfiðleika að fá börnin sín til að borða hollan og
góðan mat. Stundum vantar matarlystina en sum börn eru einfaldlega
hræðilegir gikkir og neita að borða matinn sem er á boðstólum.
Vandamálin í kringum
mat og matmálstíma
virðast vaxa með
börnunum í stað þess
að eldast af þeim. í fyrstu er
helsta vandamálið að kenna
þeim að meta grauta og krukku-
mat eftir að hafa fengið þurr-
mjólk eða móðurmjólk í nokkra
mánuði. Það er fullkomlega eðli-
legt að það taki smá tíma að
venja þau á grauta því það er
fyrsta fæðan sem þau kynnast.
Oftast er grauta- og krukkutíma-
bilið það þægilegasta í matarferl-
inu. Smám saman eykst matar-
lystin og innihald krukkunnar
hverfur á augabragði. Ávextir og
soðið grænmeti taka við og á
meðan allt er maukað niður
gengur yfirleitt ágætlega að
koma fæðu ofan í þau. Um leið
og fjölbreytnin eykst fara vanda-
málin að skjóta upp kollinum.
Barnið neitar að borða einhverja
tiltekna fæðutegund, skyrpir
henni út úr sér um leið og reynt
er að troða henni ofan í það en
smjattar svo á öðrum tegundum,
t.d. einhverju sem er ögn sætara.
Það er þekkt vandamál að börn
neiti að tyggja matinn þegar þau
hafi aldur og getu til. Þau eru ein-
faldlega vön að fá stappaðan eða
maukaðan mat og nenna ekki að
tyggja sjálf. Foreldrar falla fljótt
í þá gildru að eltast við kenjarn-
ar í ungum sínum sem er nú ekk-
ert skrýtið því allir vilja eiga södd
og sæl börn. Strax á fyrsta ári
hefst oft línudansinn við eldhús-
borðið sem vill oft vara langt
fram á unglingsárin. Börnin finna
fljótt hversu viðkvæmir foreldr-
arnir eru gagnvart matnum og
nýta sér það til hins ýtrasta, neita
að borða hitt og þetta í von um
að fá eitthvað betra eftir að hafa
unnið orrustuna. Eftir smá tíma
geta matmálstímarnir farið að
snúast upp í martröð þar sem
stálin stinn mætast og enginn er
tilbúinn að gefast upp. Örvænt-
ingarfullir foreldrar ættu að hafa
í huga að þol-
inmæðin get-
ur gert
kraftaverk en
það er full-
komlega
eðlilegt að
hún sé á bak
og burt eftir
margra mán-
aða og jafnvel margra ára streð
við matmálstímana.
En það er ekki hægt að setj a öll
matarvandamál barna undir einn
og sama hattinn. Það má í raun
skipta þeim upp í tvo megin-
flokka. Annars vegar eru það
börn sem hafa litla matarlyst,
borða í skorpum og nærast oft
illa. Hins vegar eru það börnin
sem eru bara matvönd og neita
að borða ákveðnar fæðutegund-
ir.
Lasin og lystarlaus
Ástæðurnar fyrir því að börn
eru oft lystarlítil og nærast illa eru
margvíslegar en oftar en ekki eru
þær tengdar veikindum. Börn
sem veikjast oft og hafa verið sett
á fjölda lyfjakúra, missa gjarnan
matarlystina. Þau fá oft í magann
vegna lyfjanna og við það mynd-
ast ákveðinn keðjuverkun sem
getur tekið langan tíma að kom-
ast út úr. Lystarlausu börnin eru
ekki endilega matvönd. Það get-
ur bara tekið óralangan tíma að
koma nokkrum bitum upp í þau.
Sum eru svo slæm að þau þurfa
58 Vikan
helst að hafa Brúðubílinn og leik-
arana úr Latabæ fyrir framan sig
svo þau fáist til að opna munn-
inn. Foreldrar þessara barna
þurfa að gefa sér nógu langan
tíma, oft allt að klukkustund, til
að koma matnum ofan í þau. Um
leið og barnið er búið að borða
helminginn af matnum verður
auðveldara að koma þeim næsta
ofan í það. Líkaminn fer að kalla
á meiri næringu og smám saman
eykst matarlystin. Margir for-
eldrar grípa til þeirra örþrifaráða
að gefa þeim ís og sæta drykki,
til að koma einhverju ofan í þau.
Eldri börn sem ættu að geta
komið matnum sjálf ofan í sig,
en eru lystalaus, hafa tilhneig-
ingu til að sleppa því að borða. Ef
foreldrarnir fylgjast ekki nægi-
lega vel með þeim er hætt við að
maturinn endi í ruslinu. Lystar-
laus börn, valda foreldrum yfir-
leitt miklum áhyggjum og nauð-
synlegt er að komast að því hvað
veldur lystarleysinu. í ljósi þeirr-
ar staðreyndar að sífellt yngri
börn eru farin að svelta sig til að
vera sem allra grennst, þurfa for-
eldrar líka að vera á varðbergi og
sjá til þess að börnin borði holl-
an mat og borði örugglega allt
sem er á diskinum.
Matvendni
Matvendni er annars konar
vandamál. Börnunum finnst
maturinn vondur á bragðið og
neita að borða hann. Þessi börn
eru oft ódugleg að smakka nýja
fæðutegund og setja ímyndaðan
rennilás fyrir munninn, sem opn-
ast ekki fyrr en eitthvað gómsætt
er komið á borðið. Þau vita líka
af því ef Cocoa Puffs pakkinn
leynist uppi í skáp og ef þau vilja
ekki það sem er í boði, fá þau
bara morgunkornið á diskinn
sinn. Það versta við matvönd
börn er að ef foreldrar pína mat-
inn ofan í þau, kasta þau matnum
gjarnan upp. Oft eru þau óttalega
klígjugjörn og geta ekki hugsað
sér að láta þennan tiltekna mat
inn fyrir sínar varir. Róleg kvöld-
máltíð getur breyst í hálfgerðan
fjölskylduharmleik á svipstundu.
Foreldrarnir eru búnir að eyða
drjúgum tíma í að hugsa upp mat
sem þeir halda að barninu líki og
elda hann. Maturinn er borinn á
borð en litli ormurinn fitjar upp
á trýnið og segir að þetta sé vond-
ur matur, án þess að vera búinn
að smakka hann. Foreldrarnir
pirrast og spennan magnast. Eft-
ir nokkrar fortölur og þreifingar
ákveða þau að gefa barninu
jógúrt í staðinn fyrir að senda það
svangt inn að sofa.
Læknar, næringarfræðingar og sálfræðingar eru sammála um að
bað sé ekkí vænleg leíð að pína mat ofan í barnið. Þeir mæla
frekar með að foreldrar revni eitthvað af bessum aðferðuni:
é (Fáðu barnið með góðu til að smakka mat sem það hefur ekki smakkað áður.
Ú (Settu lítið af öllu sem er á boðstólum á matardisk barnsins, ekki láta barnið
ráða því.
é (Ekki gefast upp um leið og barnið fitjar upp á trýnið. Ef barnið fer að mót-
mæla áður en það smakkar fáðu það þá til að smakka fyrst og kveða svo upp
dóm.
é (Gættu þess að hafa kröfur um borðsiði í samræmi við aldur barnsins.
é (Ekki láta allt heimilislífið snúast um þennan eina matardisk. Ekki láta barnið
finna hversu mikið þetta pirrar þig. Kannski er það bara að biðja um athygli
með hegðan sinni.
é (Um leið og barnið hefur aldur til skaltu leyfa því að aðstoða þig við matseld-
ina. Það er oft meira spennandi að borða mat sem maður hefur sjálfur eldað.
é (Gættu þess að barnið sé ekki að háma í sig kex og annað ruslfæði rétt fyrir
matinn.