Vikan - 09.05.2000, Blaðsíða 25
!
Sjö stig og minna
Æfðu þig í daðrinu
Ertu að kvarta yfir lélegri frammi-
stöðu í ástarlífinu? Það er orðið tíma-
bært að þú gerir eitthvað í þínum mál-
um, kona góð. Þú gefur karlmönn-
um ákaflega tvöföld skilaboð ef þú
gefur þá einhver. Þú vilt að karlmað-
urinn taki öll skrefin, þar með að
brjóta ísinn, bjóða þér út og að sjá um
að hringja í þig. Þú ætlarað láta hann
hafa fyrir hlutunum og síðan ertu
steinhissa á því að ekkert gengur. Það
má vel vera að þú hafir skýringar á
reiðum höndum af hverju þú hagar
þér eins og freðin ýsa, en trúlega má
leita þeirra í litlu sjálfstrausti. Leggðu
mikla vinnu í sjálfstraustið þitt, því
gott sjálfstraust kemur þér langt í líf-
inu, ekki bara í samskiptum við karl-
menn. Konur sem senda tvöföld
skilaboð eru líka oft að jafna sig eft-
ir sambandsslit eða aðra erfiða lífs-
reynslu. Þær geta verið hræddar við
höfnun eða þora hreinlega ekki að
taka áhættu í lífinu. Þegar þú horfist
í augu við glæsilegan karlmann, ekki
líta undan. Njóttu stundarinnar og
leyfðu þér að daðra örlítið, það sak-
ar ekki. Þú þarft ekki að stökkva í
fangið á honum en þú getur haldið
augnsambandinu, rekist óvart utan í
hann eða byrjað að spjalla við hann.
traustið í lagi og lætur ekki eins og þú
þurfirá karlmanni að haldatil að geta
skemmt þér. Ef þeir verða þess varir
að þú getur notið lífsins án karl-
manns, finnst þeim ennþá meira
spennandi að fá að vera þátttakend-
ur í lífi þínu.
Karlmenn laðast gjarnan að kon-
um sem gefa þeim undir fótinn en
láta þá taka næsta skref. Þeir eru líka
þakklátir fyrir að þurfa ekki að bera
alia ábyrgðina. Maðurinn er alsæll
með að hafa valið jafnyndislega og
frábæra konu eins og þig. Það besta
er að hann heldur að hann hafi átt
einhvern valmöguleika!