Vikan - 09.05.2000, Blaðsíða 39
Til að vita hvort inn
alvöru inysuprótein
sé að ræða iná þekkja það á
að gott prótein hlandast ekki
anðveldlega ot> það iná alls ekki fara
í niatvinnsluvél. Ef liinu »n$>nst;eðu er lialdið
fram er ekki uni góða viiru að ræða.
um. Hann hafði nýlokið fjög-
urra vikna sýklalyfjakúr í
annað sinn á stuttum tíma
og næsta skref átti að vera
rör í eyrun. Þetta var fyrir
rúmu ári síðan. Þá frétti
Hulda af Immunocal. Hún lét
drenginn sinn taka það inn í
fjóra mánuði og heilsu hans
fór stöðugt fram á þeim
tíma. Hún hef ur ekki þurft að
fara með drenginn til lækn-
is eða í apótek síðan. Hulda
tók inn Immunocal syni sín-
um til samlætis og lætur
mjög vel af því. Ef einhver
hóstar eða hnerrar á heim-
ilinu hrærir hún Immunocal
út í súrmjólk, gefur viðkom-
andi í nokkra daga og ekkert
verður úr veikindunum.
Hulda segist vera opin fyrir
notkun náttúrulyfja og bæði
tekið inn sólhatt og hvítlauk
til að styrkja ónæmiskerfið.
Hún segirað Immunocal taki
þó öllu fram sem hún hefur
prófað á þessu sviði.
Fleiri vildu tjá sig um
neyslu Immunocal og bætta
líðan sína í kjölfarið en ekki
reyndist pláss í blaðinu.
Rannsóknír á
mönnum
Fyrrum samstarfsmaður
Dr. Luc Montagnier, þess
sem uppgötvaði HIV veiruna,
Dr. Sylvain Baruchel var fyrstur til að
prófa Immunocal á fólki. Dr. Baruchel
setti þrjá alnæmissjúklinga á
Immunocal í þrjá mánuði. Á þeim
tíma þyngdust þeir verulega eða frá
tveimur upp í sjö kíló en það höfðu
þeir ekki gert fyrir tilraunina. Glúta-
þíonmagnið jókst hjá þeim öllum og
um heil 70% hjá einum þeirra. Öll-
um þremur fór að líða mun betur.
Immunocal vakti mikla athygli á
heimsráðstefnu um alnæmi í Genf í
Sviss sumarið 1998. Þar kom fram að
tylft amerískra lækna, sem starfar
saman sem hópur, væri að setja á fót
rannsókn þar sem Immunocal væri
gefið sem viðbót við hefðbundnar
lyfjagjafir alnæmissjúklinga.
Engin viðbói - aðeins
hjálpartækí
Dr. Jimmy Gutman erviðurkennd-
ursérfræðinguríbráðalækningum en
stundar nú heimilislækningar. Hann
var deildarforseti (Chief Resident)
læknadeildar í bráðalækningum við
Emory háskóla í Atlanta í Bandaríkj-
unum og veitti forstöðu þjálfun og
kennslu læknanema í bráðalækning-
um við McGill háskólann í Montreal í
Kanada. Dr. Gutman hefur sérhæft sig
í þætti glútaþíons varðandi heilsu
fólks. Hann skrifaði bókina The
Ultimate GSH handbook - en hún er
hornsteinn þekkingar á glútaþíoni og
virkni þess. Hann sagði eftirfarandi í
viðtali: „Immunocal er prótein sem
hækkar magn efnis sem verður til á
eðlilegan hátt í líkama okkar. Með
notkun þess erum við ekki að bæta
neinu utanaðkomandi við líkams-
starfssemi okkar- við erum aðeins að
nýta okkur það sem líkaminn sjálfur
ætti að gera til að verja sjálfan sig.
Vandamálið er að fæða okkar er
snauð af amínósýrunum sem mynda
glútaþíon." Og Dr. Gutman heldur
áfram, „Immunocal sem gerir líkam-
anum kleift að framleiða glútaþíon, er
í raun amínósýra, cystine gjafi. Það er
mikilvægt að átta sig á því að það er
undir glútaþíonmagni líkamans kom-
ið hvort andoxunarefni eins og C og
E vítamín virka sem skyldi. Án glúta-
þíons eru þau eins og fagur bíll án
vélar. Glútaþíon er ekki bara andox-
unarefni; heldur er það líka afeitrari
og eflir ónæmiskerfið. Þessu erum
við að komast að og staðreyndin er
sú að ekkert annað efni á markaðn-
um tekur eins vel á þessum þremur
mikilvægu þáttum og Immunocal.Við
erum rétt að byrja að skilja ónæmis-
fræði, hið mikilvæga er að við lærum
alltaf meira og meira."
Immunocal fæst aðeins hjá
Immunocal á íslandi, Ármúla 29, sími
533-3010.
Heimildir og aðstoð: Breakthrough
in Cell-Defense, bók eftir Dr. Allan C.
Summersall Ph.D., M.D. um Dr. Gusta-
vo Bounous M.D., FRCS(C)), Greinar
um Immunocal á Internetinu (glut-
athione.com, immunocal.org og leit.is),
Þorsteinn Njálsson lœknir, bókin Lœkn-
ingamáttur líkamans, Haraldur Guð-
jónsson hjá Immunocal á íslandi og
Hulda Pálsdóttir klœðskerameistari og
móðir.
Ef farið er inn á: leit.is á Internetinu og orðið
immunocal slegið inn má meðal annars finna foruítni-
legar upplýsingar á íslensku um ýmsar af beim rann-
sóknum á Immunocal sem eru í gangi ásamt niður-
stöðum eldri rannsókna og margt annað áhugauert
um petta næringarefni. Upplýsingar má einníg finna á
uefnum glutathione.com en bær eru á ensku.
Verslunin 10-11 við Seljaveg fær bestu þakkir fyrir lánið á ávöxtunum og grænmetinu.
Vikan
39