Vikan


Vikan - 09.05.2000, Qupperneq 45

Vikan - 09.05.2000, Qupperneq 45
Miranda lee þúsund dollara undir og vann sex hundruð þúsund dollara,“ sagði hann ánægður. „Sex hundruð þúsund?“ spurði Laura vantrúuð. „Já ég labbaði út með sex hundruð þúsund í vasanum og fór strax og keypti þessa litlu íbúðablokk. íbúðirnar þörfnuðust að vísu allar við- gerðar en ég hef verið að dunda mér við að gera þær upp að undanförnu," sagði Dirk stoltur. „Þú sem gast ekki einu sinni neglt nagla í vegg!“ sagði Laura hissa. „Já, fólk getur breyst, Laura. Aðstæður breyta fólki. Ég hef bara haft gam- an af að dunda við þetta og sú eina sem er enn í óíbúðar- hæfu ástandi er mín íbúð.“ Laura þagði um stund. Hún sem hafði ímyndað sér að hann byggi í einhverri flottri piparsveinaíbúð með risa- stóru rúmi og speglum í loft- inu. Kannski hafði hann alls ekki komið með neinar kon- ur þangað en kannski hafði hann bara farið með þær á gistihús eða farið heim til þeirra. Hún reif sig upp úr þessum hugsunum þegar hún sá Nicholas koma hlaupandi að bílnum og Carmel á eftir hon- um. „Hvað er ég oft búin að banna þér að hlaupa svona?“ sagði Carmel við Nicholas. „Þú dettur og hálsbrýtur þig einn daginn með þessu áframhaldi,“ bætti Carmel við og setti hendur á mjaðm- ir. Nicholas stökk hins vegar upp í fangið á Dirk. „Hvað segir þú í dag, litli prakkari?“ sagði Dirk og sveiflaði litla drengnum í kringum sig. „Hvað er að sjá! Hús for- eldra þinna er enn í heilu lagi. Þér hefur ekki tekist að brenna kofann til grunna ennþá, litli skæruliði." Nicholas hló og tók utan um hálsinn á Dirk. „Dirk, ekki segja svona lag- að, drengurinn fær bara slæmar hugmyndir,“ sagði Laura hneyksluð. Frændurnir litu í átt til Lauru og brostu báðir. Þeir voru í raun báðir myndar- legir prakkarar sem voru gefnir fyrir að taka áhættu og báðir voru þeir líka ákaflega heill- andi. Laura hugsaði með sér að ef að hún og Dirk ættu son væri hann sennilega líkur Nicholasi. Kraft- mikill glókollur með augun hans pabba síns. Hún fékk kökk í háls- inn og sneri sér við til að loka bílnum. Hún fann að Dirk fylgdist með henni. Henni var mikið í mun að hann sæi ekki að hún var í upp- námi eða að hann gæti gisk- að á af hverju svo væri. Hún var auðvitað miður sín yfir því að Dirk gæti ekki eignast börn en hún myndi verða miklu meira miður sín ef hann færi frá henni aftur. Hún sneri sér við að Donnu sem var komin að bílnum líka og brosti til hennar. Donna var í fallegum kjól og með krullur í hárinu. „Hver er eiginlega þessi fal- lega stúlka? Ég kannast eitt- hvað við hana en er ekki viss hvaðan,“ sagði Laura stríðn- islega. „Þetta er ég!“ sagði Donna áköf. „Jæja, eigum við ekki að fara að borða, turtildúfurnar mínar ?“ spurði Carmel Dirk og Lauru. Lauru fannst hún heyra örlítinn hæðnistón í rödd Carmelar en var samt ekki viss. „Förum við í Trivial Pursuit á eftir ?“ spurði Donna eftir- væntingarfull. „Nei, ég held ekki. Ég býst við að Dirk og Laura séu búin að leika sér nóg að undan- förnu,“ sagði Carmel þurr- lega. „Búðu þig undir þriðju Vinalínan 1 -JS^'Þegar ■ y vantarvin ö Grænt númer 800 6464
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.