Vikan - 09.05.2000, Síða 46
Miranda lee
HNEYKSLANLEGT BÖNORD
gráðu yfirheyrslu," hvíslaði
Dirk að Lauru þegar þau
gengu til Morries sem stóð
við grillið.
„Þú ert lögfræðingurinn.
Segðu mér hvað ég á að
segja!“ sagði Laura við Dirk.
„Segðu Carmel bara að ég
hafi komið aftur og sagst sjá
eftir því sem ég gerði og að
ég hafði sagt að ég elskaði þig
ennþá. Reyndu að nota orð-
ið „ást“ sem oftast þá bráðn-
ar hún eins og allar konur,“
sagði Dirk.
Laura varð hugsi. Hún
hafði bráðnað þegar Dirk
hafði talað um ástina. Var
honum kannski ekki
treystandi? Var þetta allt
saman bara hluti af ráða-
bruggi hans?
„Ekki hugsa svona!“ skip-
aði rödd innra með henni.
„Þú verður að treysta honum,
annars mun þetta aldrei
ganga,“ sagði röddin.
„Hvað er að?“ spurði Dirk
þegar hann sá hversu alvarleg
hún var.
„Ég mundi bara eftir því að
við komum ekki með neitt
með okkur, hvorki vín né
meðlæti,“ sagði Laura.
„Hafðu ekki áhyggjur af
því. Morrie á nóg til elliár-
anna ívínkjallaranum,“ sagði
Dirk.
Hann hafði rétt fyrir sér
varðandi Carmel. Hún var
fljót að gleypa við skýringum
Lauru á sambandi þeirra.
Carmel var líka nógu nærgæt-
in til þess að spyrja ekkert
frekar út í konurnar sem Dirk
hafði sést með á meðan hann
og Laura voru aðskilin.
Laura leit á Dirk og hugs-
aði um það sem Hester hafði
sagt. Hún hafði sagt að Laura
væri að leita uppi vandræðin
með því að byrja aftur með
Dirk og að hún gæti átt á
hættu að verða særð aftur.
Laura óttaðist það líka. Hún
treysti Dirk ekki j afn vel núna
og hún hafði gert áður fyrr.
A fyrsta hjónabandsári þeirra
hafði hann líka verið ákaflega
opinn og sagt henni allt, frá
vinnunni, tilfinningum sínum
og í raun öllu sem á daga hans
dreif.
Núna virtist hann vilja
hólfa líf sitt meira niður, þar
sem vinnan var í einu hólfi,
tilfinningarnar í öðru og kyn-
lífið í því þriðja.
Hún var viss um að ófrjó-
semin var ástæðan fyrir því að
Dirk hafði skriðið svona inn
í skel sína. Hann vissi ekki
hvernig hann átti að taka á
þeim vanda og hún vissi það
reyndar ekki heldur. Hann
yrði sennilega aldrei sami
maðurinn og hún giftist eftir
þetta áfall. Laura varð hins
vegar að gera það upp við sig
hvort hún væri tilbúin að vera
gift þessum nýja manni sem
virtist bara vera fær um að tjá
tilfinningar sínar með einum
hætti, í rúminu.
Hún treysti karlmönnum
yfirhöfuð ekkert sérstaklega
vel, sérstaklega ekki eftir allt
sem móðir hennar hafði inn-
prentað henni, og hún var viss
um að samband sem væri ein-
göngu byggt á losta gæti
aldrei gengið til lengdar.
Hún settist niður með vín-
glas í hendi og andvarpaði.
„Hvað er að?“ spurði Dirk.
„Af hverju heldur þú að
það sé eitthvað að?“ spurði
hún á móti.
„Þú ert búin að gefa mér
svo oft illt auga í dag að mig
var farið að gruna að ég væri
með opna buxnaklauf eða
hefði framið einhvern glæp.“
Laura hló en sagði ekki
neitt.
„Láttu ekki svona, ég þekki
þig betur en nokkur annar.
Hvað er að?“
Atti hún að þora að segja
honum frá hugsunum sínum?
Hún hafði áhyggjur af fram-
tíðinni en henni hafði liðið al-
veg ótrúlega vel alla þessa
viku. Eins vel og þegar þau
voru í brúðkaupsferðinni
sinni.
„Þarna kom það! Asni er
ég,“ hugsaði Laura með sér.
Það var sem eldingu hefði
lostið niður í huga hennar.
Auðvitað var Dirk upptekinn
af kynlífi þeirra núna eftir
svona langan aðskilnað. Þess
vegna leið henni eins og þau
væru í brúðkaupsferðinni þar
sem kynlífið hafði verið í að-
alhlutverki. Nýjabrumið
myndi smám saman fara af
sambandinu og þá myndi
eðlilegra líf taka við. Nú var
bara um að gera að njóta
þessara villtu daga til hins
ýtrasta.
Laura leit tælandi á Dirk og
sagði: „Eigum við kannski að
fara í bíltúr saman? Á ein-
hvern afvikinn stað?“
„Já, endilega,“ sagði hann
hás og kyssti hana ástríðufull-
ur.
Meirihattar tilboð A
fyrir áskrifendur
V i k u n n a r !
af bessum
/ ið kynnum til leiks Fróðakortið sem getur orð-
/ ið þér til hagsbóta á ýmsum sviðum því fram-
i /vegis munum við mánaðarlega kynna ýmis
spennandi tilboð fyrir áskrifendur Vikunnar. Það
^borgar sig því að fylgjast vel með sérkjörum og til-
boðum okkar.
í maí verða Vikan og verslunin Tekk vöruhús, Bæj-
arlind og Kringlunni með frábært tilboð fyrir áskrif-
endur blaðsins.
Gegn framvísun Fróðakortsins fást þessar glæsilegu
glæsilegu vörum
vörur með 25 % afslætti á meðan birgðir endast.
Þessi tekkskápur með gleri í hurð er glæsilegur
hvar sem hann er settur. Hann geta áskrifendur Vik-
unnar eignast með 25% afslætti í maí. Gluggatjöldin,
rúmteppið og púðaverin gera heimilið enn fallegra og
það er um að gera að nota tækifærið meðan hægt er
að fá þessa einstöku gæðavöru með miklum afslætti!
Tekk vöruhús er til húsa við Bæjarlind 14-16 (s: 564-
4400) og í Kringlunni 4, (s: 5814400).