Vikan - 13.06.2000, Page 12
áður fyrir börn. Þetta gæti
einnig verið spennandi fyrir
fullorðna fólkið," segir hún.
„Ég verð því að vinna í sum-
arfríinu en það verður samt
rosalega gaman,“ segir hún
og brosir.
Ég fer í Parísarhjólið, dýra-
garðinn, Effelturninn og
Notre Dame kirkjuna en
margir krakkar þekkja sög-
una um hringjarann frá Notre
Dame.“
Barnaþættirnir hennar
Bergljótar njóta mikilla vin-
sælda hjá yngstu kynslóðinni
og samkvæmt nýlegri Gallup
könnun eru þeir helmingi vin-
sælli en Stundin okkar ef lit-
ið er á Faxaflóasvæðið. Þætt-
irnir eru á dagskrá laugar-
dags- og sunnudagsmorgna
og eru endurteknir milli
klukkan 17 og 19 á sunnudög-
um. Bergljót hefur sér til
halds og trausts hundinn sinn,
hann Draco Silfurskugga,
pínulítinn svartan blending.
Hann hefur verið með í þátt-
unum í allan vetur og staðið
sig með prýði.
„Hann getur verið svolítið
óþekkur en ég leyfi honum
alltaf að vera frjálsum," segir
Bergljót brosandi. „Hann sit-
ur stundum sallarólegur með
mér fyrir framan
myndavélina en get-
ur svo farið á flakk
um allt stúdíó. Draco
fær ekki að fara með
til útlanda í upptök-
ur þar vegna reglna
um einangrun gælu-
dýra hér á landi en
hann fær að fara í
sveitina á meðan.
Hann klæðir sig
stundum upp á fyrir
þáttinn og á ýmis
skemmtileg föt,“
segir hún.
I þáttum Bergljót-
ar eru sýndar teikni-
myndir en einnig er
hún með dagskrár-
gerð. Hún telur sig
heppna með teikni-
myndir. „Ég er að
sýna uppá-
haldsteiknimynda-
persónurnar mínar,
Ástrík, Kalla kanínu,
Lukku Láka, Stjána
bláa og Anastasíu og
svo má lengi telja,“
segir hún.
Bergljót fær einnig marga
góða gesti í þátt sinn. „Ég fæ
oft skemmtilegar persónur í
heimsókn, t.d. hef ég fengið
brjálaðan vísindamann, mör-
gæs frá Suðurpólnum og snjó-
karl sem ætlaði að verða fyrsti
íslenski snjókarlinn til að
komast á Norðurpólinn,“ seg-
ir Bergljót. „Ég leik sjálf
ömmuna sem býr í Árbæjar-
safninu, fer í íslenskan þjóð-
búning og les íslenskar þjóð-
sögur og ævintýri fyrir börn-
in. Svo hef ég farið í spákonu-
gervi og lesið í kristalskúlu og
spil. í vetur spáði Spinna spá-
kona sífelldri snjókomu og
vona að það sé ekki henni að
kenna að það ætlaði aldrei að
hætta að snjóa,“ segir Berg-
ljót hlæjandi.
Bergljót er með getraun í
hverjum þætti og krakkarnir
eru duglegir að senda inn
lausnir. „Þátttakan er svo
mikil að tölvan mín gafst upp
einn góðan veðurdag. Hún
þoldi ekki allan þennan
tölvupóst frá börnunum og
stíflaðist. Því var nú fljótlega
kippt í lag,“ segir hún. „Svo
eru börnin dugleg að senda
mér myndir sem þau hafa
teiknað eða málað.“
Útlit þáttarins sem er
óvenjulegt hefur vakið at-
hygli og hrifningu barnanna.
„Segja má að þetta sé nokk-
urs konar prinsessuþáttur því
börnin hafa oft kallað mig
prinsessuna á skjánum í bréf-
um sínum. Umgjörðin utan
um þáttinn er ævintýraleg og
falleg. Ég vil ekki hafa þetta
eins og ég sé að bjóða börn-
unum inn á heimili, heldur í
ævintýraheim. Ég sit t.d. í rólu
en ekki stól þegar ég tala við
þau. í sumar verð ég ekki í
ævintýrastúdíóinu heldur á
ævintýraferðalagi, en Talna-
púkinn mun aftur á móti vera
í myndstúdíói Skjás eins og
halda utan um þáttinn. Hann
býður börnin velkomin og
kveður þau,“ segir Bergljót
að lokum.
Bergljót stödd fyrir Irainan
Disneyland í París. Islensk
liörn fá að sjá í barnaþátt-
unnin 2001 nútt hvaft hún
var aft gera í París í allt
Kærasti Bergljótar hefnr
liúið stærstan liluta ævi
sinnar í París og er því besti
leiðsögumaður sein völ er á
í þessari borg. Hann hefur
einnig verið hafsjór hug-
niyiula fyrir Bergljótu enda
unnið fyrir sjónvarpsstiiðina
Canal + í Frakklandi.
12
Vikan