Vikan - 13.06.2000, Page 19
andrúmslofti íbúðarinnar.
Það má einnig setja nokkra
dropa af hreinni olíu í skál
með sjóðheitu vatni og anda
að sér gufunum. Þá er best að
setja handklæði yfir skálina
og anda að sér gufunum í eins
þéttu formi og hægt er.
Ilmolíurnar má einnig setja
í bómullarhnoðra á ofn en
hitinn eykur lyktina sem berst
um íbúðina og veitir íbúum
hugarró, orku og gleði.
Hreinar ilmolíur má svo
blanda í vatn, setja í úðabrúsa
og sprauta víða um íbúðina til
að fá híbýlailm sem einnig er
mjög áhrifaríkt.
Ilmkjarnaolíumeðferð er
notuð við þunglyndi og
streitu, til að örva og fríska
eða til að slaka á vöðvum sem
eru spenntir vegna vöðva-
bólgu eða gigtarvandamála.
Einnig eru til bólgu- og bakt-
eríudrepandi ilmolíur, ilmol-
íur sem hreinsa húð og draga
úr unglingabólum. Ilmkjarna-
olíur eru góðar við einbeiting-
arskorti, svefnleysi, fyrirtíða-
spennu, bakverkjum, háls-
bólgu, kvefi og sveppasýking-
um.
Ilmkjarnaolíum er oft
blandað saman en ekki þykir
æskilegt að nota fleiri en tvær
eða þrjár saman í senn. Olí-
urnar eru mjög sterkar og því
oftast nær blandaðar
grunnolíu áður en þær eru
bornar á líkamann.
llmkjarnaolíumeðferð
gagnast við:
Þunglyndi, kvíða, streitu,
vöðva- og gigtarverkjum,
meltingarkvillum, fyrirtíða-
spennu, tíðahvörfum ogsjúk-
dómum eftir fæðingar, húð-
kvillum og til að örva og auka
unað ástarlífsins.
Gott að muna þegar ilm-
kjarnaolíur eru notaðar:
Til að ilmurinn og gufurn-
ar nýtist sem best er gott að
loka vel að sér meðan olían er
notuð. Þær má aldrei taka
inn. Fyrir barnshafandi kon-
ur er ekki æskilegt að nota
ilmkjarnaolíur fyrstu þrjá
mánuði meðgöngu og ekki ef
meðganga er erfið, nema í
samráði við lækni.
Nokkrar jurtir og virkni
ilmkjarnaolíu beirra:
Ylang Ylang er slakandi og
hjálpar gegn streitu- og kvíða-
tengdum vandamálum.
Rós örvar tilfinningarnar
og vekur unaðskennd, vinnur
einnig gegn ennisholubólg-
um, blóðrásarvandamálum,
svefnleysi, fyrirtíðar-
spennu og fl.
Lavender er slak-
andi og góð við þreytu,
gagnast við höfuðverk
og öðrum verkjum,
góð á sár og marbletti,
við sýkingum, skor-
dýrabiti og fleira.
Frankincense hefur
hlýjan, róandi ilm og er
verkjastillandi og góð
við bakverkjum.
Bergamot (tré af
sítrónuætt) er frísk-
andi og örvandi, vinn-
ur gegn þynglyndi og
örvar blóðrásina.
Rósmarín örvar
skynfærin og eykur
einbeitingarhæfileik-
ann, vinnur gegn
gleymsku og andlegri
þreytu, góð við öndun-
arfæravandamálum,
verkjum eftir erfiði, harð-
sperrum og einnig góð við
feitu hári.
Sedrusviður er róandi og
sefjandi. Er vökvalosandi,
sýkladrepandi og vinnur vel
gegn ýmiss konar sveppasýk-
ingum. Sedrusviður blandast
vel sandalviði og margir nota
slíka blöndu til að hjálpa sér
að slaka á við hugleiðslu.
Kamilla veitir vellíðan og
hughreystir. Hún gagnast
sömuleiðis við krampa, róar
taugakerfið og vermir vel ef
fólki er kalt.
Clary Salvía er slakandi og
vinnur vel gegn þunglyndi.
Salvía er einnig sýkladrep-
andi og kemur góðri reglu á
meltinguna. Hægt er að
blanda hana við Ylang Ylang
og rósmarín og þá hefur hún
bæði slakandi og endurnær-
andi áhrif.
Eukalyptus er orkugjafi
sem hreinsar hugann. Ilm-
kjarnaolían hreinsar einnig
vel öndunarveginn og gagn-
ast við kvefi og ýmsum öðrum
kvillum í öndunarfærum.
Eukalyptus er góð við gigt og
bólgum.
Síprusviður eykur vellíðan,
dregur úr vondri líkamslykt
og gagnast gegn krömpum og
meltingartruflunum.
Geranía veitir hugarró og
gleður. Henni má blanda við
flestar aðrar olíur og eykur
hún þá áhrif þeirra.
Terunnaolía vinnur gegn
bakteríum, hreinsar og afeitr-
ar. Hún endurnærir og kætir
og er góð vörn gegn hvers
konar sýkingum.
Vikan 19