Vikan


Vikan - 13.06.2000, Blaðsíða 20

Vikan - 13.06.2000, Blaðsíða 20
Texti: Hrund Hauksdóttir Nsónu lifsins! myndar í þessum mál- um. Þau vita fátt skemmtilegra en að ösla úti í grenjandi rigningu! Dæmigerður morgun: Þú vaknar, hellir svefndrukkin upp á rotsterkt kaffi, hend- ist af stað í grenjandi rign- ingu og sest í stóiinn í vinn- unni, bar sem hú munt eyða öllum deginum. Allir morgn- ar eru eins; bú ferð dofin í gegnum sama ferlið og gef- ur bér ekki svigrúm til bess að njóta líðandi stundar. Uæri ekki mun skemmtilegra að gæla við öll skilningarvit- in og hleypa ástríðu og ánægju inn í hvunndaginn? Með bví að fara á handa- hlaupum í gegnum daglegt líf missum við af öllum lítlu smáatriðunum sem geta haft mjög jákvæð áhrif á vellíðan okkar. Það er bví vel bess virði að staldra aðeins við og njóta lífsins. Það er svo sem ekki flók- ið mál að njóta einfald- leika lífsins og það krefst lítillar sem engr- ar fyrirhafnar. Gefðu þér tíma til þess að finna angan blómanna og njóta umhverfisins. Hér kemur listi yfir nokkrar unaðsemdir sem auðveldlega er hægt að upplifa og njóta. Það eina sem þú þarft að gera er að setja skilningarvit- in í fluggír og um leið verður líf þitt fyllra en þig hafði dreymt um. Gakktu án regnhlífar í rigningunni. Það getur verið frábært að fara í hressandi gönguferð og ösla í pollunum í grenjandi rigningu, ef maður er vel klæddur. Það er yndisleg tilfinning að finna ferska dropana á hörundi sínu og heyra niðinn frá rigningunni. Regn- kápa og stígvél eða góðir skór verða að vera með í för og að sjálfsögðu góða skapið. Við get- um tekið börnin okkur til fyrir- Uaknaðu snemma. Vaknaðu aðeins fyrr en vana- lega á morgnana svo þú getir átt notalega stund heima við áður en þú tekst á við daginn. Hættu að kaupa ódýrt kaffi í stórum um- búðum og hella upp á fulla könnu á hverjum morgni. Veldu þér frekar sérmalað eðalkaffi og njóttu þess að dreypa á 1-2 boll- um þegar þú vaknar. Breyttu reglulega um tegund til þess að kitla bragðlaukana og fá mis- munandi kaffiilm í húsið. Ef þú drekkur ekki kaffi þá getur þú valið úr miklu úrvali af tei. Gefðu þér tíma til þess að horfa á morg- unsjónvarpið á Stöð 2 sem er sér- lega skemmtileg blanda af frétt- um, fróðleiksmolum og viðtöl- um. Notaðu falleg undirföt. Eftir sjóðheita morgunsturt- una er mjög gott að bera raka- krem eða uppáhalds „body lotionið" þitt á líkamann. Það er bæði frískandi og gott fyrir húð- ina. Dustaðu svo rykið af fallega undirfatnaðinum sem þú lumar á inni í skáp en notar aldrei nema við hátíðleg tækifæri og njóttu þess að vera vel klædd innst sem yst. Silki- og satínáferð á undir- fötum er mjög þægileg og þér finnst þú örugglega vera fínni og kvenlegri í vinnunni en venju- lega. Kauptu plöntur. Það er gaman að eiga falleg blóm til þess að lífga upp á nánasta umhverfi sitt, hvort sem er heima eða í vinnunni. Ef þú átt ekki neinar plönt- ur og afsakar þig með því að þú hafir ekki „græna fingur" þá skaltu skoða þá afstöðu þína upp á nýtt. Farðu í gróðrastöð og fáðu fagmann til þess að leiðbeina þér um hvers konar plöntur séu lífseig- ar og þurfi litla umhirðu. í leið- inni getur þú keypt fagurmálaða blómapotta og heimili þitt mun öðlast suðrænan blæ. Á sumrin er mjög gaman að kaupa falleg pottablóm til þess að hafa úti á svölum eða í stóru keri við úti- dyr eða í innkeyrslu. Skrautleg sumarblóm eru mikill gleðigjafi. Það er líka virkilega gaman að kaupa vönd af afskornum rósum í næstu matvöruverslun til þess að gleðj a aðra eða bara sj álfa þig. Namm... súkkulaði. Það er varla til sú manneskja sem ekki elskar súkkulaði en við konur reynum oft að forðast það af ótta við að fitna. En lífið (og súkkulaðið) er til að njóta þess! Þótt þú leggir áherslu á hollt mataræði þá er engin ástæða til þess að sniðganga ástríðufullt súkkulaðiát. Þegar þú ert slöpp eða illa fyrirkölluð hresstu þig þá við með góðu súkkulaði eða heimsæktu vinkonu þína með lít- inn konfektkassa og njótið hans saman. Dansaðu. Næst þegar þú ert heima við og hefur ekkert fyrir stafni spilaðu þá uppáhaldstónlistina þína og dansaðu eins og þú eigir lífið að leysa. Eldfjörug, spænsk tónlist er tilvalin til þess að sleppa fram af sér beislinu og dansa af ósvik- inni innlifun. Ef þú átt maka þá tekur þú hann að sjálfsögðu með í sveifluna, eða börnin. En þú getur líka notið þess að dansa ein. Leiktu með leir. Að vinna með leir er slak- andi og skemmtileg af- þreying. Bleyttu hendurnar og hnoðaðu leirinn, klíptu í hann og rúllaðu honum. Börn hafa mjög gaman af því hnoða leir og því getur þetta orðið hin besta fjölskyldu- skemmtun. Gefðu ímyndunarafl- inu og sköpunargleðinni lausan tauminn. Handskrifaðu bréf. Gefðu þér stund til þess að setjast niður og skrifa vinkonu þinni eða vini bréf upp á gamla móðinn, þ.e.a.s. slepptu tölvu- póstinum og handskrifaðu. Kauptu þér fallegt bréfsefni og vandaðu skriftina. Það er mjög gaman að fá handskrifuð bréf inn um lúguna hjá sér og það er ekki síður gaman að skrifa þau. Slökunartónlist. Eftir langan og erfiðan dag er nauðsynlegt að slaka á og hvíla sig. Þá er tilvalið að hlusta á ljúfa slökunartónlist og láta hugann reika eða jafnvel hugsa ekki neitt. Skrevttu skrifstofuna. Það er bráðnauðsynlegt að láta sér líða vel á vinnustað og það er ýmislegt hægt að gera til þess. Hafðu mynd af börnunum, hund- inum þínum, eða bara einhverja mynd sem gleður þig, í ramma á borðinu þínu. Fallegar plöntur í skrautlegum pottum eða afskor- in blóm í vasa hafa góð áhrif á lundina. Veldu þér sérlega falleg- an bolla sem þú notar bara í vinn- unni en þá verður enn skemmtilegra að fá sér kaffi- sopa. 20 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.