Vikan


Vikan - 13.06.2000, Síða 24

Vikan - 13.06.2000, Síða 24
Besta gjöfin „Vini sínum skal maður vinur vera nggjalda gjöívið gjöí." (Ur Hávamálum) Alls kyns gjafir eru hluti af menningu okkar og hafa ýmis konar merkingu í hug- um okkar. Flestir eiga ein- hverjar minningar tengdar góðum gjöfum sem heir hafa hegið eða gefið í gegn- um tíðina, einhvern hlut, lít- inn eða stóran, sem hefur mikið tilfinningalegt gildi sem ekki gleymist. Vikan tók hús á nokkrum hióðhekktum eínstaklingum og spurði bá um bestu gjöfina sem beir hefðu fengið um ævina. Fyrst fyrir svörum var leik- konan, Nanna Kristín Magn- úsdóttir. Uppáhaldsgjafir Nönnu Kristínar eru gjafir sem hafa komið henni veru- lega á óvart. Nanna Kristín Magniísdóttir leikkona kann vel að nieta / }>jafír sem konia á óvart. „Það er kannski svolítið erfitt að svara þessu í fljótu bragði en fyrsta gjöfin sem kemur upp í huga minn er jólagjöf sem ég fékk frá mömmu og fósturföð- ur mínum þegar ég bjó með þeim í Svíþjóð þegar ég var sex ára. Mig hafði lengi dreymt um Lundby dúkkuhús sem mér fannst ofsalega flott. Mamma og fósturfaðir minn keyptu svona hús til að gefa mér í jólagjöf en settu það ekki inn í stofu undir tréð þar sem það var svo stórt og auðþekkjanlegt í lag- inu að ég hefði uppgötvað strax hvað var í pakk- anum ef það hefði verið undir trénu. Þess í stað komu þau með húsið inn í stofu á aðfangadags- kvöld og tóku mynd af mér þegar ég sá húsið. Ég var svo hissa og glöð að ég vissi ekki hvernig ég átti að vera. Ég hafði fengið það sem mig langaði þá mest í í öllum heiminum. Enda sést það vel á myndinni hvaða viðbrögð húsið vakti. Því fylgdu borðstofuhúsgögn og dúkkufjölskylda og síðan safnaði ég húsgögnum í húsið, gerði það mjög fínt og lék mér mikið með það,“ segir Nanna Kristín og verður angurvær í röddinni þegar hún hugsar um hið dásamlega Lundby dúkkuhús sem var draumur margra lítilla stúlkna á þessum árum, hvort sem var í Svíþjóð eða á íslandi. Gulur páfagaukur „Seinni gjöfin sem kemur upp í hugann var líka jólagjöf frá móður minni og fóstuföður sem kom verulega á óvart. Þau beittu sömu aðferð og þeg- ar þau gáfu mér dúkkuhúsið, þ.e.a.s. komu meö gjöfina inn í stofu en settu hana ekki undir tréð og tóku síðan mynd.Þá gjöffékk ég þegar ég var þrett- án ára og það fyndna er að viðbrögð mín við þeirri gjöf voru nákvæmlega eins og við þeirri fyrri sem ég fékk þegar ég var sex ára því svipurinn á mér á myndinni sem var tekin í seinna skiptið er alveg eins og í fyrra skiptið. Ég gat varla trúað að ég hefði fengið þessa frábæru gjöf, nákvæmlega það sem mig langaði mest í,“ segir Nanna Kristín. En hver var hún þessi dularfulla gjöf? „Það var gulur páfagaukur," segir Nanna Kristín hlæjandi. „Ég hafði séð gulan páfagauk í auglýsingu sem Ragnhildur Gísladóttir söng í um Nóa-konfekt og heillaðist alveg.“ Að sögn Nönnu Kristínar átti hún bæði dúkku- húsið og páfagaukinn lengi og hélt mikið upp á hvoru tveggja. „Dúkkuhúsið er enn til einhvers staðar í geymslu hjá mömmu en páfagaukurinn er hjá Guði,“ bætir Nanna Kristín við. Suekkjandi skólataska Þegar talað er um gjafir rifjast líka upp fyrir Nönnu Kristínu ein gjöf sem hún var mjög svekkt yfir að fá þótt gjöfin sem slík væri bæði falleg og nytsamleg. „ Ég man eftir einum jólum stuttu eftir að Stöð 2 byrjaði þegar ég fékk gjöf sem ég var voðalega svekkt með. Mig langaði voðalega mikið að fá Stöð 2 og sá pakka undir trénu sem var alveg eins í laginu og myndlykill. Ég var viss um að mamma og fósturfaðir minn ætluðu að gefa mér áskrift að Stöð 2 í jólagjöf. Þegar ég hins vegar tók svo pakk- ann upp fann ég strax að hann var alltof léttur til að vera myndlykill. í pakkanum var falleg leður- skólataska sem ég var þó svekkt yfir þar sem myndlykillinn hafði verið mun ofar á óskalistan- um.“ Nanna Kristín þekkir greinilega vel til hugtaks- ins, sælla er að gefa en þiggja, því henni er einnig minnistæð gjöf sem hún gaf unnusta sínum í jóla- gjöf í hitteðfyrra. „Ég gaf honum Playstation-leikjatölvu," segir Nanna Kristín hlæjandi. „Ég vissi eiginlega að hann myndi ekki kaupa sér hana sjálfur en hann lang- aði mikið í hana og því ákvað ég að gefa honum hana í jólagjöf." En hefur hann þá ekki bara setið fastur við tölv- una síðan hann fékk hana unnustunni til mikillar skapraunar? „ Nei, nei, þetta var allt í lagi því ég hef sjaldan séð glaðari mann og hann þegar hann opnaði pakkann," segir Nanna Kristín að lokum. 24 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.