Vikan


Vikan - 13.06.2000, Síða 28

Vikan - 13.06.2000, Síða 28
Mamma gittist fimm sinnum Mamma er alls ekhi slæm kona. Hún reyndi sítt besta til að vera okkur góð móðir en skrautlegt ástarlíf hennar hafði mun meiri áhrif á líf okkar systkinanna, og bá sér- staklega mitt líf, heldur en hún gerði sér grein fyrir. Hjónaskilnaðir eru tíðir í dag og fólki finnst oft lítið mál að stofna til nýs sam- bands og iafnvel fleiri en eins bótt börn af fyrri samböndum eða hjóna- böndum séu til staðar. Fólk telur sjálf u sér trú um að ef bað sé ánægt hljóti börnin að aðlagast og verða ánægð í nýju fjölskyldunni. Málið er síður en svo svona ein- falt. Ég er rúmlega brítug í dag og á að baki fjölda sambanda víð ágætis menn sem ég kastaði öll- um frá mér af bví að ég var svo viss um að ekkert beirra gæti enst. Uppvöxt- urinn hafði kennt mér að ástin varir ekki að eilífu- að minnsta kosti ekki hjá mömmu. Móðir mín eignað- ist bróður minn með fyrsta eigin- manni sínum þegar hún var aðeins fimmtán ára gömul. Eg geri ráð fyrir að það hafi verið slys en sennilega hefur hún að ýmsu leyti verið fegin að losna að heiman þar sem faðir hennar var alkó- hólisti. Hún giftist barnsföður sínum þegar hún var átján ára en skildi við hann innan árs. Ég veit svo sem ekki hver ástæðan fyrir skilnaðinum var því þessi mað- ur er mjög ljúfur og góður og hefur alltaf verið bróður mínum fyrirmyndarfaðir og ákaflega umhyggjusamur í minn garð líka. Sennilega hafa þau bara verið of ung og bæði bróðir minn og þriðji eiginmaður mömmu eru mér sammála um að hún hafi einfaldlega ekki getað bundist einum manni. Ástæðan var ekki sú að hún væri illa innrætt eða laus í rásinni heldur miklu frekar sú að hún þurfti á svo mikilli ást að halda eftir vanrækslu í eigin uppeldi að ást eins manns nægði henni einfaldlega ekki. Hún varð að fá staðfestingu á að fleiri menn gætu elskað hana. Annar eiginmaður móður minnar var faðir minn. Mikill rólyndismaður sem var fimmt- án árum eldri en hún og hafði alltaf verið einhleypur. Þau kynntust þegar móðir mín var tuttugu og eins árs, eftir því sem ég best veit, og eignuðust mig og giftu sig þegar hún var tutt- ugu og þriggja ára. Hjónaband þeirra entist lengst allra hjóna- banda móður minnar (hingað til að minnsta kosti). Þau skildu hins vegar fyrst þegar ég var sex ára og við mamma og bróðir minn, fluttum til Vestfjarða í nokkra mánuði þar sem mamma fór að vinna á skrif- stofu. Mamma og pabbi tóku hins vegar aftur saman þegar ég var að verða átta ára, mér til mikillar gleði. Sú sæla var skammvinn því þau skildu end- anlega aftur rétt áður en ég varð níu ára. Ég var niðurbrotin þeg- ar þau skildu og fór að pissa undir á næturnar og gat ekki borðað. Ég vildi verða eftir hjá pabba en mamma tók það ekki í mál. Hún var alls ekki vond við mig en hún átti líka erfitt eftir að þau pabbi skildu og gat lítið gefið mér af sér. Hún var eirð- arlaus og fór mikið út að skemmta sér þannig að ég og bróðir minn vorum mikið ein heima um helgar. Hún passaði sig samt á því að koma aldrei með karlmenn með sér heim af böllum því hún gerði sér grein fyrir að það myndi fara illa með okkur. Hún átti sennilega kærasta á þessu tímabili en hún var þó nógu tillitsöm til að halda þeim utan við líf okkar. Kannski var það misskilin tillitssemi hjá henni því einn daginn kom hún heim úr vinnunni með mann með sér sem hún sagðist ætla að giftast og sagði að hann ætlaði að flytja til okkar. Þetta gerðist tæpum tveimur árum eftir að hún og pabbi skildu og ég fékk algjört brjálæðiskast. Sem bet- ur fer var maðurinn, sem heitir Daníel, ákaflega góður og skilningsríkur þar sem hann átti sjálfur börn af fyrra hjóna- bandi. Hann vann mig á sitt band smátt og smátt og mér fór að þykja mjög vænt um hann. Það er óhætt að segja að Daní- el standi upp úr af þessum fóst- urfeðrum mínum því ég fann fyrir mesta örygginu þegar hann og mamma bjuggu sam- an og mér fannst við næstum því vera eðlileg fjölskylda. Mamma hafði vit á því að gift- ast Daníel ekki strax en hún varð þó fljótlega ófrísk og eign- aðist tvíbura með honum þeg- ar ég var tæplega þrettán ára, okkur öllum til mikillar gleði. En Adam var ekki lengi í Para- dís því eftir að tvíburarnir fædd- ust breyttist samband mömmu og Daníeis mikið tii hins verra og það endaði með því að hún henti honum bókstaflega út á gallabuxunum einum fata þeg- ar tvíburarnir voru hálfs árs. Daníel var miður sín og ákveð- inn í að ná í hana og okkur öll aftur. Hann tók okkur öll til sín, mig og bróður minn líka, um helgar og var ofsalega góður við okkur. Á endanum tók mamma við honum aftur og þau giftu sig eiginlega strax og hann flutti inn aftur. Mér fannst frábært að fá Daníel aftur og var ákaflega glöð yfir því að hann og mamma skyldu gifta sig. Ég sé það hins vegar núna hversu heimskulegt og barnalegt það var af þeim að gifta sig um leið og þau tóku saman aftur því sælan stóð stutt. Flokíð fjölskyldulíf Ég man að mamma og Dan- íel skildu endanlega rétt fyrir jól þegar ég var að verða sextán ára. Vinkonur mínar komu í heimsókn á Þorláksmessu. Ég var að passa tvíburana og skreyta jólatréð því mamma vann í verslun og kom því seint heim á Þorláksmessu. Við vor- um að koma pökkum fyrir und- ir trénu þegar önnur vinkona mín sagði í barnslegu hugsunar- leysi að hún öfundaði mig af öll- um þessum pökkum. Það var al- veg rétt hjá henni að ég fékk fullt af jólagjöfum því ég fékk að sjálfsögðu pakka frá mömmu og hennar fjölskyldu, pabba og hans fjölskyldu og svo fékk ég líka pakka frá föður bróður míns og Daníel og for- 28 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.