Vikan


Vikan - 13.06.2000, Page 44

Vikan - 13.06.2000, Page 44
Framhaldssaga annar hluti af fjórum lAGTÆKUR MAÐUR Þau gengu að bláum pallbíl. Cooper- Jackson stóð á hurð- inni. „Mágur minn á bílinn," sagði Golding þegar Maggie leit spyrjandi á hann. Henni til mikillar skelfingar óku þau beina leið að bank- anum. Hún trúði ekki sínum eigin eyrum þegar læknirinn spurði hvar skrifstofa Brinnons væri. Hjartað barðist í brjósti hennar á leiðinni upp í lyft- unni. „Hvað ertu að hugsa? Ég er viss um að hann verð- ur alveg brjálaður og segir mér upp á stundinni.“ „Ef hann gerir það skal ég ráða þig í vinnu hjá mér,“ sagði hann. Hún benti honum á skrif- stofu Brinnons og Dr. Gold- ing gekk inn án þess að banka. Herra Brinnon sat við skrif- borðið. Hann horfði Maggie og Dr. Golding til skiptis. „Mér þykir það leitt," sagði hann við lækninn. „Ég hef ekki hugmynd um hver þú ert en eins og þú sérð er ég upp- tekinn." Hann benti á papp- írsstaflana á skrifborðinu. „Það er allt í lagi,“ sagði Dr. Golding. „Við verðum ekki lengi. Það er bara svolítið sem við þurfum að koma á hreint.“ Herra Brinnon opnaði munninn en Dr. Golding þaggaði niðri í honum. „I fyrsta lagi flokkast framkoma þín við Maggie undir kyn- ferðislegt áreiti. Það hefur kannski gleymst að kenna þér það í bankaskólanum, en við- urlögin við því eru sekt og jafnvel fangelsisvist.“ Herra Brinnon fölnaði upp. „í öðru lagi á ég von á því að lögmaður fröken Ivey hafi mikinn áhuga á því að fara yfir starfssamninginn hennar með lögmönnum bankans. Mér skilst að þú hafir gert ein- hvers konar munnlegan samning við hana. Það getur svo sem vel verið en líklega er best að láta dómstólana skera úr um það.“ Maggie fól andlitið í hönd- um sér. Hún var komin með hræðilegan höfuðverk. Dr. Golding hallaði sér að henni og hvíslaði í eyra henn- ar. „Nú er komið að þér. Segðu honum að láta þig í friði.“ Hann klappaði henni uppörvandi á handlegginn. Maggie dró djúpt að sér andann. Hún var í vondum málum nú þegar, hvers vegna ekki að láta allt vaða. „Herra Brinnon,“ sagði hún. „Ég bið þig vinsamlegast um að láta mig í friði. Mér lík- ar ekki hvernig þú starir á mig og heimtar að ég fari með þér út að borða.“ Hendur henn- ar skulfu og hún átti erfitt með að koma orðunum út úr sér. „Ég fer ennfremur fram á að þú standir við það sem þú lofaðir þegar þú réðst mig í vinnu.“ Hún var undrandi á sjálfri sér. Hún gat varla trúað því að það væri hún sem stæði þarna og svaraði fyrir sig. Dr. Golding brosti til henn- ar. „Maggie, viltu hafa okkur afsakaða eitt augnablik. Ég þarf að tala við herra Brinnon undir fjögur augu.“ „Sjálfsagt.“ Hún fór fram og reyndi að bera höfuðið hátt. Stuttu seinna opnaði Dr. Golding dyrnar og benti henni að koma. „Það er öllu óhætt,“ sagði hann brosandi. „Herra Brinnon þarf að segja þér svolítið.“ í þetta sinn beið Dr. Golding á ganginum. Herra Brinnon ræskti sig nokkrum sinnum og sagði svo: „Ég bið þig afsökunar. Ég hef komið illa fram við þig. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því í framtíðinni." Maggie kinkaði kolli og reyndi að leyna undrun sinni. „Þú mátt taka þér allt það frí sem þú þarft á að halda þegar sonur þinn fer í aðgerð- ina og ég skal ganga frá fast- ráðningu þinni stax í dag.“ Hann ræskti sig aftur. „Verð- ur þú hér á morgun til þess að skrifa undir?“ „Ég verð hér,“ svaraði hún. Herra Brinnon var fölur og sveittur. „Hvers vegna tekur þú þér ekki frí það sem eftir er dagsins?" sagði hann. „A fullum launum að sjálf- sögðu.“ Hún kinkaði aftur kolli og gekk að dyrunum án þess að líta um öxl. Dr. Golding brosti til henn- ar í lyftunni á leiðinni niður. „Líður þér ekki betur?“ Maggie var hætt að vera hissa þegar þau óku upp að byggingavöruverslun. Þar festi Dr. Golding kaup á nýj- um lás og öryggislokum. Hún reyndi að mótmæla þegar hann tók upp veskið og heimtaði að borga lásinn. „Bætt lífsskilyrði eru inni- falin í meðferðinni." Þau settust aftur upp í bíl- inn og stefndu heim til Maggie. „Hvar er sonur þinn?“ spurði Dr. Golding. „Hann er í leikskóla hér í nágrenninu.“ „Eigum við ekki að sækja hann?“ Var þetta líka hluti af með- ferðinni? Hún sá fyrir sér í anda gleðisvipinn á Tim. „Það er góð hugmynd.“ „Gott,“ sagði Dr. Golding. Eitt í viðbót. í dag líður mér ekki eins og Dr. Golding. Væri þér sama þótt þú kallað- ir mig Jake?“ „Ég hélt að þú hétir Jason.“ „Ég kann betur við Jake.“ Dr. Golding eyddi síðdeg- inu í viðgerðirnar. Tim elti hann á röndum. Jacobsen, skapstirði nágranninn í næstu íbúð, stakk höfðinu út um dyrnar. „Hvaða læti eru þetta?“ spurði hann reiðilega. Dr. Golding lét sem ekkert væri. „Komdu sæll,“ sagði hann og rétti Jacobsen hönd- ina. „Ég er að skipta um lás hjá vinkonu minni,“ sagði hann og benti á Maggie. „Þú hefur kannski líka áhuga á því að fá nýjan lás? Mér líst ekk- ert á þennan sem þú ert með núna.“ „Hvað kostar það?“ spurði Jacobsen. „Hreint ekki neitt,“ svaraði Dr. Golding og Maggie til mikillar furðu þáði Jacobsen boðið með bros á vör. „Ég vildi gjarnan skipta um lás á öllum hurðunum í hús- inu. Við getum ákveðið ein- hvern tíma sem hentar öllum áður en ég fer,“ sagði Dr. Golding. Jakobsen kinkaði kolli til Maggie áður en hann fór inn og lokaði á eftir sér. „Ég er nú svo aldeilis hissa,“ hvíslaði Maggie furðu lostin. Dr. Golding heyrði ekki til hennar. Hann var í djúpum samræðum við Tim. Tim sagði eitthvað og Dr. Goldvin hló, lyfti sér upp og tók hann í bóndabeygju. Tim skríkti af hlátri og Maggie tók undir. Hún hafði ekki leikið sér svona við Tim í langan tíma, hann var orðinn allt of þungur fyrir hana. Dr. Golding lagði Tim frá sér og Tim hagræddi gleraug- unum á nefinu. Hann brosti svo mikið að það sást varla í augun á honum á bak við þykk glerin. Maggie var ham- ingjusamari en hún hafði ver- 44 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.