Vikan


Vikan - 15.08.2000, Blaðsíða 15

Vikan - 15.08.2000, Blaðsíða 15
og Þorgeirsboli dró húðina forðum. Að sjálfsögðu er hann líka svo einstaklega skipulagður að hann er með miða sem á stendur allt sem vantar. Sá galli er hins vegar oftast á gjöf Njarðar að það lögmál virðist gilda þrátt fyr- ir mikla vinnu við að útbúa minnismiðann að þegar heim kemur reynist eitthvað vera búið sem allir héldu að væri til eða hreinlega að gleymst hef- ur að skrifa einhver atriði á miðann. Karlmenn hafa sömuleiðis skelfilega gaman af því að bera saman verð á hinum ýmsu vörumerkjum innan ákveðinnar vörutegundar og takist þeim að benda á að til sé eitthvað ódýrara en það sem eiginkonan kaupir venju- lega finnst þeim að þeir hafi náð einhverju markmiði, stig- ið eitthvert skref sem sanni að þeir hafi viðskiptavit umfram kvenfólkið. Konurnar brosa í kampinn því þær vita að í körfunni leynist hitt og þetta snakk sem þær hefðu aldrei keypt og nemur meira en sparnaðinum af bauna- dósinni sem karlinn fann með ærinni fyrirhöfn í neðstu hillu. Skór á tóma tóltfótunga Konur fara hins vegar í búðir til að skoða, velta fyr- ir sér því sem til er í hillunum og raða jafnvel saman mat- seðli vikunnar fyrir framan kjötborðið í næsta stórmark- aði. Það tekur tíma og ekk- ert má trufla einbeitinguna. Þá er sömuleiðis notalegt að hafa einhvern sér við hlið til að ráðgast við um hvort kjöt- búðingur sé ekki góður á þriðjudag en steikt ýsa kjör- in á miðvikudag. Fallega skreytt kjötborðið gefur auk þess ótal hugmyndir að rétt- um sem ekki er enn búið að reyna og minnir á einhvern gamlan, góðan sem langt er síðan eldaður var síðast. Að líta niður eftir hillunum sem geyma hreinlætisvörur minn- ir húsmóður undantekningar- lítið á að heima hjá henni er aðeins örlítið eftir í mýking- arefnisbrúsanum. Brauð- bakkar fullir af girnilegum brauðum gefa tilefni til að velta fyrir sér hollustu og grófleika brauðanna og svo kemur fyrir að laumast er til að kaupa eins og eina gulrót- arköku. Svona gefur nú matvöru- búðin marga möguleika á að njóta lífsins. Þá getur hver og einn ímyndað sér hvað það er gaman að fara inn í fallega gjafavöruverslun og skoða muni sem eru listavel gerðir. Það er skemmtilegt að renna fingrunum niður eftir glæsi- legum línum postulínsvasa eða lyfta kristalsrauðvínsglasi og ímynda sér hvernig skar- latsrauður litur vínsins færi við mynstrið. Diskar, bollar, glös, bakkar og kerti, allt eru jjetta hlutir sem auka á ánægju okkar af góðum mat og samveru með fjölskyld- Hrekkjóttur hraðbanki Islensk kona sem var í sumarfríi á Spáni fyrir skemmstu var komin í nokkra tímaþröng með að ljúka við að kaupa það sem hún ætlaði sér. Flugvélin heim beið úti á velli og átti að fara í loft- ið innan örfárra klukkustunda en hún og vinkona hennar voru enn í bænum að tína saman síðustu flíkurnar. Eiginmenn þeirra biðu á kaffihúsi og supu af bjórglösum meðan konurnar sinntu þessu þjóðþrifaverki. Konugreyið varð uppiskroppa með peninga og arkaði að næsta hraðbanka lil að sækja meira. Bankinn sá var ekki veg- legri en svo að hann gleypti kreditkortið hennar án þess að skila neinu í staðinn. íslenskar konur eru þrautseigar og deyja ekki ráðalausar. Hún vissi að vonlaust væri að ná kortinu aftur samdægurs svo hún kallaði á vinkonu sína og bað hana að lána sér aura. Eitlhvað var farið að minnka í buddunni hjá þeirri frú líka svo hún stakk sínu korti í raufina á hraðbankanum og hugð- ist sækja lánsfé handa vinkonu sinni. Hraðbankinn var við sama heygarðshornið nema að í þetla sinn sáu þær örlítið í endann á kortinu úl úr raufinni. Þær hlupu að kaffihúsinu þar sem menn þeirra sálu, og var mál manna að glæsilegri tilþrif hcfðu tæpast sésl á ólympíuleik- vanginum. Annar eiginmaðurinn var með vasahníf á sér og nú báðu þær um hnífinn til að toga mætti kortið úr greipum bank- ans grimma. Þegar verkfærið var l'cngið hlupu þær til baka og nú reyndi á lagni kvennanna. Þær renndu blaðinu inn í raufina, beindu því síðan upp á við til að krækja í kortið og drógu það síðan að sér. í fyrstu tilraun tókst þeim að draga kortið örlflið lengra út en ekki nóg til að ná taki á því, svo aftur var reynt. Erfiðlegagekk aðþoka kortinu til því í hvert sinn sem þærstungu hnífsblaðinu undir það færðist það jafnlangt inn aftur þótt að- eins tækist að þoka því úl þegar þær drógu blaðið að sér. Konurnar voru einbeittar og niðursokknar í verk silt þegar skyndilcga var lögð þung hönd á öxl annarrar þeirra og hvöss rödd sagði eitthvað á spænsku. Þær litu upp og þarna var þá kom- inn lögreglumaður í fullum skrúða með alvæpni og augljóst var að hann hafði áhuga á að vita hvað gengi á. Þær útskýrðu fyrir manninum með miklu handapati og fyrirgangi að flugvélin biði þeirra, verslunarvaran freistaði en hvorki kort né peningar væru til staðar. Spánverjar eru miklir heiðursmenn og lögregluþjónn- inn sá strax að hér var alvara á ferð. Hann beygði sig því ylir hraðbankann og hóf að hjálpa konunum við að ná ránsfengn- um af bankanum. Þegar lögregluþjónn var kominn í spilið sáu eiginmenn kvenn- anna að þarna var verið að vinna karlmannsverk svo þeir blönd- uðu sér í hópinn og buðu fram aðstoð og ráð. Nokkuð erlið- lega gekk að eiga samskipti við lögreglumanninn því hann tal- aði litla ensku og Islendingarnirenn minni spænsku. Öðrum eig- inmanninum leiddist þólið svo hann reyndi að ná hnífnum af Spánverjanum sem brást hinn versti við og hótaði handlöku. Hvernigsagan hefði endaðer ómögulegl aðsegja ef roskin kona hefði ekki í þessu gefið sig lram úr áhorfendahópnum, sem safn- ast hafði í kringum fólkið, tekið flísatöng upp úr tösku sinni og dregið kortið út úr raufinni. Konurnar blessuðu hana í bak og fyrirog hlupu með kortiðað versluninni þarsem á elleftu stundu tókst að ná sarnan því sem svo sárlega vantaði. Vikan 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.