Vikan - 15.08.2000, Blaðsíða 53
náttúrulegum efnum og nota
ekki rúmföt úr gerviefnum til
að koma í veg fyrir hitaköst.
Næringarfræðingar geta
mælt með kvöldvorrósarolíu,
B6-vítamíni og kalki til að
auka vellíðan. Einnig er ráð-
legt að forðast kryddaðan
mat, reykingar og kaffi eða
áfengi síðla kvölds.
Hollt mataræði skiptir
einnig miklu máli. Nauðsyn-
legt er að borða kalkríkan
mat, svo sem jógúrt, undan-
rennu, spínat, kotasælu og
epli til að draga úr hættu á
beinþynningu.
Góðar olíur
Hægt er að draga úr þurrki
í leggöngum með því að nota
jojoba-olíu fyrir samfarir.
Einnig er hægt að bæta
nokkrum dropum af svokall-
aðri laufskálafléttutrésolíu til
að draga úr þessum kvilla.
Ef vanlíðanin er sálræns
eðlis getur verkað róandi að
nota olíu af sítrónugrasi eða
rósaolíu út í bað.
Fyrir þær sem þora geta
nálastungur bæði dregið úr
tíðarverkum og sumum ein-
kennum tíðahvarfa eins og
kvíða, þunglyndi, geðsveifl-
um, hitaköstum og bakverk.
Heimild: Heilsubókfjöl-
skyldunnar.
Talið er að fimmtungur
kvenna yfir þrítugu hafi slétt-
vöðvahnúta og margar þeirra
vita ekki af þeim fyrr en þeir
uppgötvast við skoðun. Þótt
þeir geti valdið mjög miklum
blæðingum eru þeir ekki til
vandræða að öðru leyti og
breytast mjög sjaldan í
krabbameinsæxli.