Vikan - 15.08.2000, Blaðsíða 52
texti: Gunnhildur Lily Magnúsdóttir
Blæðingatruflanír eða tíðaverkir eru algengt vandamál sem margar konur glíma við í hverjum mánuði. Mörg ráð
eru til við tíðaverkjum, bæði gömul húsráð, lyf og náttúrulegar aðferðir. Hér á eftir fara nokkur góð ráð gegn tfða-
verkjum fyrir hær konur sem vilja nota náttúrulegar aðferðir.
Þegar tíðir hefjast
dragast legvöðvarnir
saman og þrýsta
slímhúðinni þar út.
Þessi samdráttur orsakast af
efnum sem líkjast hormónum
og kallast prostaglandín. Ef
líkaminn framleiðir of mikið
af þessu efni verða samdrætt-
irnir ákafir og valda sársauka
eða krampa í neðri hluta
kviðarhols eða mjóbaki.
Stundum fylgir einnig ógleði
eða niðurgangur.
Hægt er að lina þessar
þrautir með jógaæfingum
sem fá þig til að slaka á og
gleyma verkjunum.
Einnig er gott að taka 100
g af kvöldvorrósarolíu og E-
vítamín á hverjum degi til að
koma í veg fyrir tíðaverki.
Sumum konum finnst gott
að drekka te úr hindberjar-
laufi eða engifer en aðrar
segja að gott sé fara í volgt
bað rétt áður en blæðingar
hefjast og blanda kúmenolíu
út í það.
Flestum finnst gott að láta
nudda sig og nudd getur
gagnast vel við tíðaverkjum
sem og öðrum verkjum. Svo-
kallað Shiatsu- þrýstipunkta-
nudd hefur reynst vel við tíða-
verkjum en þá eru nuddaðir
næmir staðir á fótum, fót-
leggjum, á kviðarholi og með-
fram lendarliðum.
Öryggið í fyrirrúmi
Þótt náttúrulegar aðferðir
geti reynst vel við þessar að-
stæður er rétt að leita læknis
ef blæðingar, sem áður verið
verkjalausar, fara að valda
verkjum því slíkt gæti bent til
sjúkdóma eins og legslímu-
flakks, sem einkennist af því
að flygsur úr legslímuhúðinni
fara að vaxa í grindarholinu
og bregðast við hormónum
sem stjórna tíðahringnum.
Einnig er rétt að leita lækn-
is ef blæðingar aukast skyndi-
lega. Slíkt kann að vera merki
um sýkingu, bólgur eða aðra
kvilla í slímhúð legsins eða
truflun á hormónastarfsemi.
Leitið einnig alltaf til læknis
ef það blæðir á milli tíða.
Asatíðir
Mjög miklar blæðingar eru
kallaðar asatíðir og orsakast
venjulega af sléttvöðvahnút-
um sem eru góðkynja æxli í
móðurlífinu. Talið er að
fimmtungur kvenna yfir þrí-
tugu hafi sléttvöðvahnúta og
margar þeirra vita ekki af
þeim fyrr en þeir uppgötvast
við skoðun. Þótt þeir geti
valdið mjög miklum blæðing-
um eru þeir ekki til vandræða
að öðru leyti og breytast mjög
sjaldan í krabbameinsæxli.
Kvenhormónið estrógen
örvar vöxt sléttvöðvahnúta
en framleiðsla estrógens í lík-
amanum fer meðal annars
eftir því hversu mikla fitu
konan borðar.
Einkenni asablæðinga eru
að þær eru svo miklar að
venjuleg bindi eða tappar
duga ekki og því geta þær
valdið miklum óþægindum.
Konur sem þjást af asa-
blæðingum ættu að neyta fitu-
snauðs fæðis sem byggist að
mestu leyti á ávöxtum, græn-
meti og mjölva því það getur
dregið úr estrógenframleiðsl-
unni og þar með minnkað
blæðingarnar.
Annað ráð til að minnka
þær er að borða fæðu sem er
auðug af C-vítamíni og P-
vítamíni eins og sítrusávext-
ir, apríkósur, tómatar,
spergilkál, paprikur, kirsuber
og rósaber.
Fyrirtíðakvillar
Sumir rugla saman tíða-
verkjum, sem konan hefur oft
á fyrstu dögum blæðinga, og
fyrirtíðakvillum. Fyrirtíða-
kvillar koma fram, eins og
nafnið bendir til, áður en
blæðingar hefjast og geta
meðal annars lýst sér með
bjúgi, þrota í húð, eymslum í
brjóstum, þunglyndi, spennu,
höfuðverk, sykurþörf og geð-
sveiflum.
Ef þú þjáist af fyrirtíðakvill-
um ættir þú að draga úr
neyslu á gosdrykkjum, koff-
íni, sykri, mjólkurvörum, fitu
og hreinsuðum kolvetnum.
Gott er að borða mikið af
grænu grænmeti og salati og
taka B6-vítamín eða B-
fjölvítamín, C-vítamím, sink,
járn, fólínsýru og kvöld-
vorrósarolíu.
Með því að halda dagbók
um fyrirtíðaeinkenni er hægt
að fylgjast grannt með geð-
sveiflum og breytingum á
hegðun og matarlyst.
Þá er einnig mikilvægt að
forðast streitu því hún getur
magnað einkennin og stunda
líkamsrækt því hún getur
dregið úr einkenninum.
Tíðahuörf
Læknisfræðileg útlistun á
tíðahvörfum er sú að tíða-
hvörf verði þegar æxlunar-
kerfi líkamans hætti starfsemi
sinni, eggjastokkarnir visni og
framleiðsla estrógens minnki
þótt framleiðsla estrógens
haldi áfram í nokkur ár eftir
tíðahvörf.
Algeng einkenni tíðahvarfa
eru m.a. hitaköst, nætursviti,
þurrkur í leggöngum, þvag-
leki, þunglyndi, gleymni,
óskýr hugsun, kvíði, einbeitn-
ingarskortur, almenn vanlíð-
an, þreyta og þrekleysi.
Hægt er að gera ýmislegt til
að draga úr þessum einkenn-
um. Skynsamlegt er að vera í
fötum úr bómull eða öðrum
52
Vikan