Vikan


Vikan - 15.08.2000, Page 63

Vikan - 15.08.2000, Page 63
Mamman Spá Vikunnar Hrúturinn 21. mars ■ 20. apríl Það verður mikið um að vera í félagslífinu hjá þér á næstunni og þú verður í fínu formi. Ef þú ætlar að taka þér tak á ein- hvern hátt er þetta rétti tíminn. Öll ákvarðanataka þín þessa viku mun standast og þér mun ganga vel að halda áætlanir. Tvíburinn 22. maí • 21. júní Ferðalög og flutningar verða ofarlega á baugi það sem eftir er mánaðarins. Farðu varlega í umferðinni, þér hættir til að vera svolítið utangátta þessa dagana. Krabbinn 22. júní - 23. júlí Fjármálin eru eitthvað að plaga þig núna og þér finnst þú vera í miklum kröggum og búin(n) að offjárfesta. Lánaðu engum og passaðu vel upp á útgjaldahliðina, því miður hefur þú ekki efni á að gera allt sem þú vilt. Ljónið 24. júlí • 23. ágúst Einhver karlmaður í lífi þínu er þér mjög hugleikinn og stjórnar þér óbeint þessa viku. Hann gæti hugsanlega gert þér Ijótan grikk eða fært þér fréttir sem þér bregður við að heyra. Láttu ekki aðra stjórna lífi þínu um of. 24. ágúst • 23. september Það er allt brjálað í vinnunni eða um það bil að verða það og þungar byrðar eru settar á herðar þér. Reyndu að harka af þér þessa viku, þetta lagast eftir því sem nálgast mánaðamótin. 24. september - 23. október Farðu vel með heilsuna þessa viku og búðu þig undir átök. Það lítur ekki út fyrir mikið annríki eða stress á næstunni en þú ert þreytt(ur) og verður að vera tilbúin(n) þegar tilfinningaflæði næstu viku skellur á þér. Nautið 21. apríl - 21. maí Þú verður að láta vinnuna ganga fyrir á næstunni. Það er einhver skjálfti á vinnu- staðnum og það mun bitna á þér ef þú tekur ekki á málinu. Aðstæðurnar þar munu batna þegar líður nær mánaðamótum. áb Bogmaðurinn 23. nóvember - 21. desember Farðu varlega, bogmanninum er hætt við áföllum þessa viku, sérstaklega líkamleg- um áföllum. Þú munt njóta sannmælis og heiðarleika annarra og verða mjög var (vör) viðþað. Steingeitin 22. desember - 20. janúar Þér munu bjóðast einhver verkefni eða vinna sem gefur þér aukna tekjumöguleika í þessari eða næstu viku. Vertu opin(n) fyrir heimavinnu, því það er að birta mjög til í at- vinnumálum þínum. einlæglega Vatnsberinn 21. janúar - 19. febrúar Nú er kominn tími til að þú gerir hreint fyrir þínum dyrum. Kannski veður þú í villu í ein- hverju máli og þarft að komast að hinu sanna með því að ræða málin opinskátt og Fiskarnir 20. febrúar - 20. mars Þú færð viðurkenningu í vinnunni fyrir störf sem þú ert alltaf að vinna og munt halda . áfram að vinna á sama hátt. Þú ert á gífur- legu flugi á framabrautinni og þetta er rétt flugtakið! Þinn tími er að koma í öllum skilningi. * Sporðdrekinn 24. október - 22. nóvember Þú ert að læra að taka tillit til annarra og þú munt sjá árangurinn f þessari viku. Einhver sem þú bjóst síst við mun hrósa þér upp í hástert. Þú átt von á fleiri óvæntum uppá- komum - mjög þægilegum. 03 591 288

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.