Vikan


Vikan - 29.08.2000, Page 25

Vikan - 29.08.2000, Page 25
Rita Atria svipti sig lífi annars ímyndinni af hinni þöglu konu sem ekkert veit um starfsemi mafíunnar. Þetta hefur einnig leitt til þess að vitnisburður kvenna, sem áður þótti vera lítils virði og lítt trúverðugur, hefur fengið nýtt gildi í réttarhöldum í mafíumálum. Glæpakuendi sem segja sex Á síðustu árum hafa marg- ar konur sem tengjast mafí- unni komið fram í dagsljós- ið. Puppetta Maresca er úr rót- gróinni mafíósafjölskyldu og giftist 17 ára gömul Pasquale Simonetti, háttsettum mafíósa í Napólí. Aðeins 80 dögum eftir brúðkaupið var Simonetti skotinn til bana af keppinaut sínum í „viðskipt- um“, mafíósa að nafni Ant- onio Esposito. Heiðurs síns vegna hefndi Maresca eigin- manns síns og myrti Esposito. Maresca var dæmd í fjórtán ára fangelsi og eignaðist þar barn þeirra Simonettis, sem hún bar undir belti þegar hann var drepinn, dreng sem hún nefndi Pasqualino, eða litla Pasquale. Þegar Maresca losnaði úr fangelsi, 31 árs gömul, varð hún ástkona eit- urlyfjabarónsins Umberto Ammaturo og fæddi honum tvíbura. Syni hennar og ást- manni kom illa saman og Pasqualino hvarf þegar hann var 18 ára. Talið er að Am- maturo hafi orðið honum að bana en beinar sannanir vant- ar. Maresca hélt samt áfram að búa með barnsföður sínum og var ásamt honum fundin sek um fjárkúgun og morð og dæmd í fjögurra ára fangelsi. Rosetta Cutolo er eldri systir Raffaele Cutolo, stofn- anda og guðföður Nuova Camorra mafíusamtakanna. Hún giftist aldrei og sagt er að hún hafi kosið að helga líf sitt yngri bróður sínum og sam- tökum hans. Hann var hnepptur í ævilangt fangelsi fyrir morð og tók þá Rosetta við stjórnartaumunum í sam- tökunum. Raffaele gaf skip- anirnar en hún framkvæmdi þær. Hún komst undan þeg- ar lögreglan réðst inn á fund mafíunnar sem haldin var í húsi hennar árið 1981 og fór í felur. Hún var í felum í 12 ár eða þar til hún gaf sig fram við lögreglu árið 1993, þá 55 ára gömul. Ros- etta hefur níu sinnum verið kærð fyrir morð en ávallt verið sýknuð vegna ónógra sannana og hefur aðeins eytt fimm árum í fangelsi fyrir tengsl við mafí- una. Angela Russo, eða heróínamman eins og hún var kölluð, var dóttir mafíósa í Pal- ermo. Hún var einkabarn og faðir hennar ól hana upp eins og strák. Þeg- ar hún giftist byrjaði hún að smygla og höndla með eitur- lyf og á sjötugsaldri var hún enn að og stjórnaði fíkniefna- viðskiptunum frá heimili sínu. Angela virkjaði alla fjöl- skylduna í starfseminni, börn og barnabörn en þau yngstu selduefninágötunni. Húnog fjölskylda hennar voru öll handtekin árið 1981, þar á meðal dætur hennar og ein dótturdóttir. Angela var dæmd í fimm ára fangelsi og dó árið 1990. var bróðir henn- ar, Nicola, skot- inn til bana. Þrátt fyrir að vera al- inn upp í mafíósafjöl- skyldu ákvað hún að ganga til Til samstarfs uið yfiruöld Margar konur hafa fengið nóg af ofbeldinu og blóðsút- hellingunum í kringum sig og gerst uppljóstrarar gegn því að fá vitnavernd og tækifæri til þess að hefja nýtt líf sem heiðvirðir borgarar. Sumar konur hafa einnig gengið til liðs við yfirvöld gegn mafí- unni í skiptum fyrir minnkað- ar sakir eða upp gefnar. Rita Atria var aðeins 11 ára gömul þegar faðir hennar, sem hún dáði svo mjög, var myrtur. Hann var foringi mafíusamtaka. Fimm árum síðar, þegar Rita var 16 ára, flðeíns 80 dögum eftir brúðkaupið uar Símo- netti skotínn til bana af keppinaut sínum í „uið- skíptum", mafíósa að nafni Antonio Esposito. Heiðurs síns uegna hefndi Maresca eigin- manns síns og myrti Esposito. Maresca uar dæmd í fjórtán ára fang- elsi og eignaðist þar barn þeirra Simonettis, sem hún bar undír belti þegar hann uar drepinn, dreng sem hún nefndi Pasqualino, eða litla Pasquale. liðs við yfirvöld í baráttu þeirra gegn mafíunni og ger- ast uppljóstrari. Hún fékk vitnavernd og bjó í Róm hjá mágkonu sinni sem einnig naut verndar. Hún bjó við sí- felldan ótta um líf sitt og varð mjög þunglynd. Hún svipti sig lífi þegar háttsettur embættis- maður á Ítalíu og yfirlýstur andstæðingur mafíunnar, Pa- olo Borsellino, var ráðinn af dögum í júlí 1992. Santa Margherita Di Giovine, kölluð Rita, var fædd í Calabria en fluttist ung til Mílanó ásamt móður sinni og systkinum. Þar hóf móðir hennar dreifingu og sölu á heróíni ásamt elsta syni sín- um, Emilio. Öll fjölskyldan tók þátt í starfseminni ásamt mörgum nágrönnum þeirra. Sonur Ritu gerðist einnig eit- urlyfjasali. Þegar „viðskipti" fjölskyldunnar voru upp á sitt besta, flutti hún inn til Ítalíu um 150 kg af heróíni á viku og stóð að ólöglegum vopnainn- flutningi. Arið 1993 var Rita handtekin fyrir að hafa und- ir höndum 1000 alsælutöflur og ákvað þá að vitna gegn allri fjölskyldu sinni, þar á meðal móður sinni. Vikan 25

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.