Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 30
Samantekt: Guðríður H a r a I d s d ó 11 i r
Uertu ánægð með Hig
Líttu jákvæðum augum á
sjálfa þig. Ef þú hefur lágt
sjálfsmat skaltu skrifa niður
alla kosti þína og gera það á
heiðarlegan hátt. Láttu allt
koma fram, hæfni þína, útlit
og gáfur. Mundu að það er
ekki bara sniðuga og fyndna
fólkið sem hefur útgeislun
heldur einnig fólkið sem hef-
ur sjálfstraustið í lagi.
Ekki vera fölsk
Ekki segja eitthvað um fólk
sem þú getur ekki sagt við
það augliti til auglitis. Ef þú
talar sífellt illa um náungann
hætta vinir þínir að treysta því
að þú talir ekki líka illa um þá.
Brostu meira
Ef þú brosir til fólks þá
brosir það ósjálfrátt til baka.
Ef bros þitt nær til augnanna
er það heiðarlegt bros.
Varastu samt að brosa þegar
þú ert ekki í skapi til þess, úr
því verður bara gretta. Fólk
getur séð það langar leiðir ef
bros þitt er falskt.
Klæddu pig í stíl við ÞIG
Ef þú gengur í fötum sem
klæða þig vel og þú ert ánægð
með hefur það áhrif á sam-
skipti þín við aðra. Þú verð-
ur öruggari með þig á allan
hátt. Kauptu þér föt sem eiga
vel við líkamsbyggingu þína
en ekki endilega föt sem eru
í hátísku og þú veist að klæða
þig illa. Ef þú getur ekki stillt
þig um að ganga í svörtu
berðu þá skartgripi við eða
slæðu í fallegum lit/litum.
Engar efasemdir um sjálfa
Digi
Þú getur eyðilagt ýmsar
kringumstæður fyrir þér ef þú
efast alltaf um orð þín, gjörð-
ir og jafnvel útlit. Fólk sem þú
hittir er í fæstum tilvikum að
leita að mistökum eða göllum
í fari þínu. Það langar að hitta
manneskju sem er viðræðu-
góð og sýnir öðru fólki áhuga.
Hættu að kvarta
Það sem skilur á milli sigur-
vegara og þess sem verður
undir er það hvernig þeir
takast á við vandamál lífsins.
Að kvarta og kveina yfir mót-
læti leysir engin vandamál
heldur þreytir þá sem þurfa
að hlusta á þig. Þeir hafa
nægileg vandamál sjálfir þó
svo þeir þurfi ekki að hlusta
á þín. Á meðan fólk virðist
ekki hafa miklar áhyggjur af
lífi þínu, hafðu það þá fyrir
þig og hættu að kvarta.
Lærðu að slaka á
Láttu axlir þínar síga nið-
ur, andaðu djúpt og segðu við
sjálfa þig: „Ég er róleg og
afslöppuð.“ Að anda djúpt
hjálpar í raun þeim hluta heil-
ans sem vinnur yfirvinnu þeg-
ar þú ert kvíðin. Ef þú þjáist
af streitu getur þú auðveld-
lega stressað þá sem standa
þér næst. Ef þú ætlar þér, í
fullri alvöru, að láta streituna
ekki ná valdi á þér mun þér
takast það.
Horfðu á björtu hliðarnar
Hugsaðu um alla þá já-
kvæðu hluti sem gerast á
hverjum degi og þér finnast
vera sjálfsagðir. Þér þykir
sjálfsagt að pósturinn komi
alltaf daglega með póst til þín,
þú getur verið tvisvar í röð í
dýru fínu sokkabuxunum
áður en kemur lykkjufall á
þær og þú finnur laust stæði
á Laugaveginum en ef þetta
brygðist alltaf myndi það gera
þig brjálaða. Ef þú lærir að
meta þessa litlu, góðu hluti í
lífinu verða þeir erfiðu lítil-
vægari.
Ekki sýna dómhörku
Reyndu að horfa fram hjá
göllum fólks. Ekki eru allir
eins og þú og hver segir að þú
sért fullkomin? Þótt þú talir
ekki um hvað þér finnist um
viðkomandi getur hann auð-
veldlega fundið það. Reyndu
að sjá það jákvæða í fari fólks,
sama hversu lítið það er. Ef
fólk finnur tilhneigingu til
dómhörku hjá þér er líklegra
að það forðist þig en að það
langi til að fá þig í vinahópinn.
Gefðu öðrum tíma
Ef þú hefur lítið að gefa
munu vinir þínir velta fyrir sér
hvað þeir séu að ómaka sig
við að hafa samband við þig.
Ef einhver hringir eða kem-
ur í heimsókn til þín, taktu
honum þá vel. Ef þú vilt ekki
að vinir þínir komi óvænt í
heimsókn, biddu þá að
hringja fyrst. Þá er auðvelt að
segja þeim á vingjarnlegan
hátt að þú sért upptekin eða
að þú viljir endilega fá þá í
heimsókn.
Uertu áhugauerðari
Þegar mikið er um að vera
í lífi þínu hefur þú frá fleiri
og skemmtilegri hlutum að
segja. Ef þú auðgar líf þitt,
færð þér skemmtilegt áhuga-
mál eða sest á skólabekk aft-
ur hefur það ekki aðeins góð
áhrif á sjálfstraust þitt held-
ur gætirðu einnig eignast nýja
og áhugaverða vini.
Taiaðu hægar
Við notum að meðaltali um
70% af tíma okkar í samskipti
við annað fólk. Ef þú breytir
samskiptamynstrinu, ferð að
tala lægra og hægar, hlustar
fólk frekar á það sem þú seg-
ir. Margir stjórnmálamenn
hafa tileinkað sér þessa tækni
með góðum árangri.
Uertu fáguð
Það kostar ekki mikið að
láta fólki líða betur. Þegar
einhver sem þú þekkir er í
glæsilegum fötum, hefur búið
til góðan mat eða endurinn-
réttað íbúðina sína er alveg
sjálfsagt að hrósa viðkom-
andi. Gættu þess þó að fara
ekki yfir strikið í hrósinu, þá
getur það virkað falskt og
breyst í andhverfu sína.
Brjóttu fsinn
Oft getur verið erfitt að
finna umræðuefni við hæfi
þegar þú hittir einhvern í
fyrsta skiptið. Gott er að
brjóta ísinn með því að spyrja
viðkomandi hvar hann hafi
eytt sumarleyfinu sínu. Ef þú
hefur ekki farið þangað sjálf
er líklegt að þú þekkir ein-
hvern sem hefur gert það eða
þú hafir séð eitthvað um stað-
inn í sjónvarpinu. Ef ekki þá
geturðu bara forvitnast og
spurt. Flestir eru ánægðir
þegar þeir tala um sjálfa sig og
það sem þeir gera!
30
Vikan