Vikan


Vikan - 29.08.2000, Page 45

Vikan - 29.08.2000, Page 45
Þórunn Slefánsdóttir þýddi ir tónleika. „Ekki minnast á mat! Komdu, við skulum drífa okkur!“ Þær komust leiðar sinnar án þess að nokkurn grunaði hverjar væru þar á ferðinni og Annie var fylgt út úr bílnum að búningsher- berginu undir sviðinu. Strákar- nir í hljómsveitinni voru mættir og biðu þeirra fölir og spenntir. Brick var sá eini sem lét sem ekk- ert væri. Einn aðstoðarmannanna færði honum stóran hamborgara. Gítarleikarinn horfði á hann fá sér stóran bita og flýtti sér fram á baðherbergið. „Þú ert með stáltaugar," sagði Annie reiðilega við Brick og leit undan. „Ég er einfaldlega svangur, ég er búinn að vera á fullu í allan dag,“ sagði hann sár. „Þú ert sísvangur!" sögðu fé- lagar hans í kór og hentu blöð- um og skóm í áttina til hans. Hann beygði sig undan og hló. „Þið eruð ekkert annað en and- legir aumingjar!" „Ertu taugaóstyrk, elskan?“ spurði Phil og kyssti hana á kinn- ina. „Ég er lömuð af skelfingu.“ „Þú veist að það breytist um leið og þú stígur á sviðið," sagði hann. Hún gretti sig þegar hún heyrði hávaðann frá tónleikagestunum sem voru að hlusta á frönsku hljómsveitina sem hitaði upp fyr- ir tónleikana. „Ég veit það, en það hjálpar mér ekki hætis hót. Það eru ekki fiðrildi sem sveima um í magan- um á mér, heldur tígrisdýr." Hún horfði á Brick innbyrða stóran skammt af frönskum kartöflum. „Og það hjálpar ekki að horfa á þessa lifandi ruslatunnu háma í sig illa lyktandi mat. Ég er hneyksluð á Frökkum að selja þetta ruslfæði. Ég hélt að þeir hefðu betri smekk en það.“ „Þeir búa til frábæra hamborg- ara!“ sagði Brick ánægður á svip- inn. „Sennilega úr hrossakjöti!“ sagði gítarleikarinn. Brick horði á hann, skelfingu lostinn. „Borða þeir hrossakjöt?" Allir viðstaddir kinkuðu kolli og Brick varð grænn í framan. Phil skellihló. „Jæja, biðin er brátt á enda. Upphitunarhljóm- sveitin er góð og allir verða komnir í rétta skapið þegar kem- ur að ykkur.“ Hann horfði á klukkuna. „Eftir fimm mínútur getur hljómsveitin farið á svið og þú ferð á eftir þeim um leið og þér verður gefið merki.“ Annie flýtti sér inn á baðher- bergið, kófsveitt frá hvirfli til ilja. Hún kúgaðist og skvetti framan í sig köldu vatni. Hún vildi óska þess að maginn í henni róaðist. Allt í einu var bankað á dyrnar. „Annie?“ Hún stífnaði upp. Hún þekkti þessa rödd. Þetta var Marc. Hvað var hann að gera þarna? Hún hafði ekki átt von á því að hitta hann. Hún gerði tvær tilraunir áður en hún gat svarað. „Já?“ „Hljómsveitin er farin á svið- ið. Þú þarft að fara upp eftir fimm mínútur." „Ó.“ Maginn í henni snerist eins og þvottavél. Dyrnar opnuðust. „Má ég koma inn?“ „Nei! Hvar er Phil? Hvar er Díana?“ Hún æddi um gólfið, æst og kvíðin. „Hættu þessu!“ Rödd hans var róleg og ákveðin. Hann tók utan um hana og hélt henni fastri með- an hún barðist um á hæl og hnakka. „Slepptu mér! “ Hvers vegna er Díana ekki hér? Hún er alltaf hj á mér ... og Phil... Hvar eru þau?“ Hún reyndi að ýta honum frá sér þótt hana langaði síst af öllu til þess. „Þau bíða eftir þér uppi. Ég sagðist ætla að ná í þig. Þú ert stjarnan mín hér í Frakklandi og ég sagðist ætla að gæta þín þar til þú færir á sviðið ...“ Hann strauk yfir hárið á henni, blíðlega eins og hún væri hrætt dýr. „Ég er vön að hafa þau hjá mér,“ sagði hún. „Ég vil að þau komi.“ „Nei, Annie. Það er ekki rétt,“ sagði hann blíðlega. „Þú sagðist sjálf vera orðin stór stelpa og þú þarft ekki á þeim að halda.“ „Ég þarf ekki heldur á þér að halda!“ sagði hún, þótt hana dauðlangaði að slaka á í fanginu á honum. Henni varð hugsað til draumanna og tárin komu fram í augun á henni. „Ertu alveg viss um það, Annie?“ hvíslaði hann. Hendur hans leituðu upp eftir bakinu á henni og hann þrýsti henni fast- ar að sér. Hún titraði. „Mig dreymdi aft- ur sama drauminn þegar ég var að hvfla mig á hótelinu,“ hvíslaði hún. „Aftur og aftur ... Hvers vegna léstu mig dreyma þessa drauma? Mig dreymdi þá aldrei áður en ég hitti þig. Ég er viss um að mig dreymir þessa drauma það sem eftir er, drauma um undar- lega atburði sem ég man ekki eft- ir að hafa upplifað." Hann kyssti hana á augun. „Ekki hugsa um þá núna. Þú þarft að fara á sviðið og syngja.“ „Ég get það ekki,“ sagði hún og greip um handleggina á hon- um. „Víst getur þú það,“ sagði hann róandi. „Ég fylgist með þér. ímyndaðu þér að í þetta sinn syngir þú fyrir mig einan." Hann kyssti hana og hún reyndi ekki að berjast á móti. Hún lagði hendurnar um hálsinn á honum og þrýsti sér upp að hon- um. Hún hafði ekki meint það sem hún sagði. Hún þarfnaðist hans ekki síður en hann þarfnað- ist hennar. Marc varð fyrri til að draga sig til baka. „Við verðum að fara,“ sagði hann andstuttur og leiddi hana fram á ganginn sem lá að sviðinu. Allir brostu til hennar og óskuðu henni góðs gengis, á frönsku og ensku. Hún heyrði ekki orð af því sem þau sögðu en brosti ósjálfrátt og kinkaði kolli. Henni leið eins og hún væri á leiðinni í gapa- stokkinn. Þau námu staðar við sviðið. Phil og Dí komu og kysstu hana á kinnina en Marc sleppi ekki af henni takinu. Forvitnin skein úr andlitum þeirra. Hljómsveitin var komin á svið- ið og áhorfendur kölluðu nafn hennar í sífellu: „Annie! Annie! Annie!“ Loksins kom merkið sem hún hafði beðið eftir. „Og hér kemur hún ..." Brick sló á trommurnar. „Sú sem þið hafið beðið eftir ... hér er hún... í fyrsta sinn í Frakk- landi... ætlið þið ekki að bjóða hana velkomna ..? Annie Dur- mont!“ Mikil fagnaðarlæti brutust út í salnum. Marc kyssti hana á koll- inn og ýtti henni blíðlega fram á sviðið. Ósjálfrátt gerði Annie réttu hreyfingarnar og hljóp fram á mitt risastórt sviðið undir hróp- um áhorfendanna. Hún stillti sér á mitt sviðið með hendurnar á lofti eins og hún vildi faðma alla viðstadda að sér. Hún brosti og allur taugaóstyrkur hvarf eins og dögg fyrir sólu. „Salut!“ kallaði hún í hljóð- nemann. „Salut, Annie, kölluðu áhorf- endur á móti. Vikan 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.