Vikan - 29.08.2000, Page 49
• Flestir hafa einhvern tíma lent
í því að síða peysan þeirra varð
að mittispeysu eftir þvott eða
ullarbolurinn víkkaði um
helming. Til að halda upphaf-
legu formi fatanna skaltu
leggja flíkina á blað eða bökun-
arpappír fyrir þvott og teikna
útlínur hennar með blýanti.
Eftir þvottinn er auðvelt að
leggja flíkina á blaðið, forma
hana þangað til hún situr ná-
kvæmlega á sínum stað og næla
fasta með títuprjónum.
• Næst þegar þú þarft að festa
tölu skaltu prófa að taka lfm-
band og líma töluna á fhkina til
að halda henni á sínum stað
meðan þú saurnar fyrstu spor-
in. Eftir saumaskapinn tek-
urðu límbandið í burtu og get-
ur verið viss um að talan sé á
þeim stað sem hún átti upphaf-
lega að vera.
• Langi þig í skínandi kopar-
potta og pönnur er til einfalt
ráð. Flelltu tómatsósu eða
tómatkrafti blönduðum vatni í
pottana og láttu standa í
fimmtán mínútur. Sýran í
tómatsósunni lætur koparinn
glansa.
Rannsóknir sýna...
...að samband sé milli gælu-
dýra og hárra einkunna! Þannig
á börnum sem eiga gæludýr að
ganga betur í skóla. Ástæðan er
sögð sú að dýrin hjálpi börnun-
um að slappa af og skerpa ein-
beitinguna. Samkvæmt rann-
sókninni gera hamstrar mestu
kraftaverkin. Átt þú einn slík-
an?!
...að mjög mismunandi er
hvað kynin þola verst í fari
tengdafjölskyldna sinna. Konur
kvarta mest yfir fjölskyldum sem
taka alltaf málstað sonarins og
koma í heimsókn án þess að láta
vita áður. Karlar þola aftur á móti
verst tengdafjölskyldur sem
koma í heimsókn of oft og tala
við þá meðan þeir eru að reyna
að horfa á sjónvarpið. Kannist
þið við þetta?!
...að afskorin blóm endast
mun lengur ef einhverju af eftir-
töldu er bætt út í vatnið:
Fjölvítamíni, aspiríni, teskeið af
sykri, örlitlu af salti eða ögn af
matarsóda.
... að minnka má verkina sem
fylgja liðagigt með því að borða
kirsuber. í berjunum eru bólgu-
eyðandi efni sem eru tíu sinnum
sterkari en aspirín. Læknar mæla
með um tuttugu berjum á dag til
að koma skapinu í lag.
...að besta leiðin til að byggja
upp traust samband milli for-
eldra og barna sé að segja börn-
unum sögur. Það dýpki tengslin
og örvi sköpunargáfu beggja að-
ila. Noti foreldrar nöfn og hæfi-
leika barnanna í sögurnar auki
það sjálfsmat þeirra verulega.
Sérfræðingar benda á að foreldr-
ar þurfa ekki að hafa áhyggjur af
lélegum söguþræði. Þeir segja
börnin ósjálfrátt einblína á þá
staðreynd að mamma og pabbi
séu að búa til sögu sérstaklega
fyrir þau.
...að koma má í veg fyrir fúl-
an andardrátt með því að drekka
te unnið úr alfalfa jurtinni en hún
hefur bakteríudrepandi eigin-
leika. Sérfræðingar mæla með
einum bolla á morgnana og öðr-
um á kvöldin.
...að einiber reynast gagnleg í
baráttunni við tíðaverki. Bland-
aðu einni teskeið af þurrkuðum
einiberjum út í heitt vatn og
drekktu í botn.
...að brún hrísgrjón innihalda
þrisvar sinnum meira af trefjum
en hvít hrísgrjón. Trefjar eru lík-
amanum nauðsynlegar og sér-
fræðingar segja að með því að
borða meira af þeim getum við
minnkað hættuna á ristilkrabba-
meini.
Vikustelpurnar UNNU KEPPNINA!
Kúrekastelpurnar, sem voru fulltrúarVikunnar ÍVestmanneyjum, unnu búningakeppn-
ina á þjóöhátíöinni með stæl!
Stelpurnar voru auk þess langvinsælustu fulltrúarnir á svæðinu þar sem þær dreifðu
frítt verjum í boði Vikunnar.
Þær fengu mörg bros og margar góðar kveðjur og skemmtu sér konunglega. Það er
aldrei að-vita nema stelpurnar hafi bjargað einhverjum frá kynsjúkdómasmiti eða
fækkað fóstureyðingum á þessu ári, en hvort sem svo hefur verið eiga þær miklar
þakkir skildar fyrir að hjálpa okkur að verja heilsu ungra l’slendinga!
Til hamingju stelpur!