Vikan


Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 53

Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 53
bak til að sjá á skjáinn né hneigja það fram. Hann á sömuleiðis að vera í beinni augnlínu úr sæti þínu svo ekki þurfi að snúa sér til að sjá á skjáinn. Á vinnustað ætti alltaf að vera góð loftræsting. Það hjálpar til að koma í veg fyrir höfuðverki sem eru algengir meðal þeirra sem rýna lengi á tölvuskjá eða þurfa að ein- beita sér mjög að verkefnum sem krefjast mikillar ná- kvæmni. Allir ættu að standa upp af og til og teygja úr sér nokkrum sinnum yfir daginn. Sömuleiðis er ágætt að gera teygjuæfingar við skrifborð- ið þegar menn finna að stirð- leika og þreytu er tekið að gæta í líkamanum. Margir fara í leikfimi eða gönguferð- ir í hádeginu og það er góð leið til að losa um spennu í lík- amanum. Fyrsta boðorðið er þó að hlusta á líkama sinn og gera eitthvað um leið þreytu og verkja tekur að gæta. Þessar vinnustellingar eru bcinlínis skaðlegar heilsunni fórfrá vinnu- plássi sínu yfir daginn en hinir. Það er því augljós- lega hagur vinnuveitenda að huga að aðstöðunni á vinnu- staðnum og reyna að sníða hana að þörfum fólksins sem þar vinnur. Uertu meðvitaður um hvernig hú vinnur Þú getur einnig sjálfur gert mikið til að bæta vinnulag þitt. Með því að vera meðvit- aður um hvernig best er að beita sér við vinnuna og reyna að fara eftir því er hægt að komast hjá mikilli þreytu og vanlíðan í lok dagsins. Marg- ir sitja í einni hrúgu við skrif- borð sitt og hafa símann und- ir vanganum meðan þeir tala í hann. Þetta er hreinlega ávísun á vandamál. Símtólið á ekkert erindi undir vanga þinn og ef þú getur ekki hald- ið á því í hendinni áttu ekk- ert með að svara. Þegar höfð- inu er hallað svona út í ann- an vangann og öxlinni lyft á móti kemur mjög óeðlilegt álag á bakið og hálsinn. Sé fólk í þessari stöðu lengi yfir daginn skapar það mikla þreytu sem smátt og smátt endar í krónískri bólgu í vöðvum og liðum. Ef starf þitt krefst þess að þú talir mikið í síma yfir daginn og þú vinnir jafnframt að öðru á meðan þá er sjálfsagt að nota heyrnar- tól sem fest eru á höfuðið. Menn eiga alltaf að sitja beinir í baki við skrifborðið. Góður stóll veitir stuðning við bakið og auðveldar þér að halda því beinu. Óþarfi er að mynda alveg 90° horn, betra er að halla búknum örlítið aft- ur það veldur því að fólk þreytist síður og þrýstingur á mjóbakið minnkar. Stóllinn á einnig að vera með örmum til að hvíla handleggina á. Sinaskeiðabólga sem margir þjást af og svokallaður tennis- olnbogi geta einfaldlega staf- að af því að handleggjunum er haldið í erfiðri og þreytandi stöðu allan daginn. Hendurn- ar eiga að hvíla beinar á lyklaborði tölvunnar og því þarf að stilla stólinn í hæð sem tryggir að þú sért hvorki að teygja hend- urnar upp né niður. Úlnlið- irnir eiga að vera beinir og fingurnir eru eini hluti handarinnar sem á að þurfa að hreyfast. Tölvuskjárinn á að vera í þinni augn- hæð svo þú þurfir hvorki að reigja höf- uðið afturá- Þessi kona gerir allt rétt «g þjáist ábyggilega ekki af vöðvabólgu. Vikan 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.