Vikan


Vikan - 29.08.2000, Qupperneq 58

Vikan - 29.08.2000, Qupperneq 58
Kennarinn lagði barnið mitt í einelti Fyrir nokkrum árum bjo ég tímabundið, ásamt tveimur börnum mínum, í stórum kaup- stað úti á landi. Dottir mín var 13 ára og sonurinn níu ára. Okkur leið vel á bessum stað, ég var í géðri vinnu og börnin blámstruðu. Sumarið sem við fluttum bangað var yndislegt og ég eignaðist marga góða vini. En svo kom veturinn og bá breyttíst alit, að minnsta kosti hjá Daða syni mínum. talaði við hana og hún var líka ósköp indæl í upphafi símtals- ins og tjáði mér að allt gengi svo vel hjá Daða. Þegar ég sagði henni að honum liði illa í tímum hjá henni breyttist viðmótið heldur betur og röddin kólnaði öll. Ég sagði henni að Daði væri fremur viðkvæmur og hræddist það að fólk hækkaði raustina við hann. Sólveig sagðist ekki geta sett hann í einhvern sér- stakan flokk og alls ekki breytt röddinni bara fyrir hann. Hún hefði kennt lengi og aldrei fengið kvörtun. Henni virtist algjörlega standa á sama þótt Daði væri vansæll hjá henni. Hún kvart- aði ekkert undan honum í símtalinu eins og ég hafði þó búist við, miðað við hvernig hún lét við hann. Ég veit að Daði getur verið utan við sig og tekur þátt í skvaldri með hinum krökkunum en hann er sjaldnast upphafsmaður að því. Hann hefur alltaf verið álitinn rólegur drengur og mikil! ljúflingur. Ég gat ekki skilið hvers vegna hún var svona vond við hann. Ég kvaddi Sólveigu á rólegu nót- unum og sagði henni að þetta hlyti að lagast af sjálfu sér. Hún hnussaði bara á móti og kvaddi stuttaralega. Ég ákvað að bíða átekta og sjá hvort viðmót hennar breyttist ekki við drenginn. Mér bæri að treysta henni sem kennara- num hans og fullorðinni manneskju. Daði hélt áfram að fá martraðir nokkrum sinnum í viku og áhyggjur mínar jukust. Einn daginn settist ég hjá honum og sagði að ég vildi að þetta vandamál leystist. Ég bað hann um að gefa mér eitlhvert dæmi um það á hvaða hátt hún væri vond við hann. Hann sagði að ef nokkrir krakkar væru að tala saman í tímum öskraði hún alltaf bara á hann og bæði hann um að halda sér saman. Hin börnin fengju engar skammir. Hann væri einnig skammaður þótt hann væri bara að snúa sér við til að horfa á hina krakkana tala. Svo var haldin jólaskemmt- un í skólanum en ég komst ekki þangað vegna vinnu minnar því þetta var um miðj- an dag. Nágrannakona mín átti dóttur í hinum níu ára bekknum og fór til að horfa á börnin skemmta. Rétt áður en bekkurinn hans Daða átti að ganga inn á sviðið voru börnin að skvaldra og hvíslast á í röðinni. Nágrannakona mín, Guðrún, sá Sólveigu ganga að Daða, taka í öxlina á honum og hrista hann og segja: „ Af hverju ertu að gera mér þetta, drengur? Geturðu ekki einu sinni verið almenni- legur núna?“ Guðrúnu brá við því hún var að fylgjast með Daða, englinum sínum, eins og hún kallaði hann, og sá greinilega að þótt hann hefði verið að pískra var hann Daði sagði að ef nokkrir krakkar uæru að tala saman í tímum öskraði hún alltaf bara á hann og bæðí hann um að halda sér saman. Hin börnin fengju engar skammir. Hann uæri eínnig skammaður bétt hann uæri bara að snúa sér uið til að horfa á hina krakkana tala. alls ekki sá sem hafði hæst og margir voru með meiri læti en hann. Sólveig áttaði sig greinilega ekki á því að nokk- ur væri að horfa í átt til henn- ar og reyndi ekki að þykjast góð við hann eins og hún gerði oftast þegar aðrir sáu til. Við eyddum jólunum í Reykjavík í faðmi fjölskyld- unnar og fórum þangað fyrr en við ætluðum þannig að börnin gátu ekki haldið litlu jólin með bekkjarfélögum sínum síðasta daginn fyrir jólafrí. Þau voru þó bæði búin að kaupa litla gjöf og leggja í púkkið því það átti að skipt- ast á gjöfum. Dóttir mín fékk að velja pakka úr bunkanum í sínum bekk en Sólveig sagði kuldalega við Daða að hann yrði bara að taka eigin pakka en fengi ekki að velja úr. Það fannst mér mjög ósanngjarnt. Strax eftir jólafríið í Reykjavík hringdi ég í skóla- stjórann og bað hann um að tala við Sólveigu svo hún hætti að vera svona vond og leiðinleg við Daða. Skóla- stjórinn var skilningsríkur og góður maður og þegar ég sagði honum frá þessu atviki á skólaskemmtuninni, jóla- pakkanum og árangurslausu símtali mínu við hana fyrr um veturinn, lofaði hann að tala alvarlega við Sólveigu. „Er ég nokkuð uond uið Daða, krakkar?" Skólastjórinn talaði greini- lega við Sólveigu samdægurs því næsta morgun, fyrsta skóladag eftir jólafrí, byrjaði hún á því að segja við Daða yfir allan bekkinn: „Þetta er ekki rétt sem mamma þín er að segja, Daði! Ég er ekkert vond við þig.“ Svo sneri hún sér að hinum krökkunum og spurði: „Er ég nokkuð vond við hann Daða, krakkar?" „NEEEIII," svöruðu krakk- arnir í einum kór. Daði sagði að honum hefði liðið mjög illa þegar hún gerði þetta og hann hefði verið hræddur við hana allan skóladaginn. Þegar ég kom heim úr vinnunni og hann sagði mér frá þessum viðbrögðum Sólveigar tryllt- ist ég úr reiði. Ég hringdi aft- Martraðir í suefni og uöku Ég fór að verða vör við að Daði varð æ vansælli í skóla- num. Hann kvartaði ekki yfir neinu sérstöku en reyndi að gera sér upp veikindi til að sleppa við að fara í skólann. Mér tókst loks að veiða upp úr honum að kennarinn væri svo leiðinlegur við hann. Hann sagði að Sólveig, kenn- arinn hans, öskraði mikið á hann og væri oft ósanngjörn. Ég sussaði á strákinn og sagði honum að það væri örugglega erfitt að kenna stórum bekk, fullum af ólátabelgjum, og að Sólveig þyrfti að halda aga til að geta haft vinnufrið við kennsluna. Daði virtist láta sér þetta nægja en kvartaði nokkrum sinnum í viðbót án þess að ég vildi taka undir það hjá honum. Svo fór hann að fá martraðir á nóttunni sem merkir að honum líði mjög illa eða að hann sé að veikj- ast. Ég beið eftir að hann legðist í kvef en ekkert gerð- ist og þá vissi ég að eitthvað mikið væri að angra hann. Ég spurði hann betur út úr um samband hans við Sólveigu og í kjölfarið ákvað ég að hringja í hana í næsta viðtals- tíma hennar. Ég var afar já- kvæð og vingjarnleg þegar ég 58 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.