Vikan


Vikan - 29.08.2000, Page 59

Vikan - 29.08.2000, Page 59
 ur í skólastjórann og sagði honum að hann yrði að færa Daða yfir í hinn níu ára bekk- inn því Sólveig legði hann í einelti. Eg sagði honum frá því hvað hún gerði honum um morguninn og hann varð al- veg eyðilagður og sagði: „Ég hélt að hún hefði meiri þroska en þetta.“ Hann lofaði að færa Daða í hinn bekkinn en sagðist þurfa að tala við kennarann þar fyrst. Þetta gæti tekið nokkra daga en drengurinn yrði færður. Næsta morgun sendi ég Daða í skólann eins og venjulega og það voru þung skref sem hann tók þann dag. Ég var á báðum áttum hvort ég ætti að kalla á hann til baka en ákvað að láta hann fara. Skóladag- urinn var ömurlegur hjá hon- um og hann grét þegar hann kom heim. Ekkert sérstakt gerðist þennan dag en illilegt augnaráð Sólveigar nægði til að honum liði illa. Ég ákvað að við svo búið mætti ekki standa og ég gæti ekki lagt meira á drenginn. Ég tók upp símann og hringdi enn eina ferðina í skólastjórann og bað hann um að láta mig vita hvenær bekkjarskiptin gætu gengið í gegn því fyrr vildi ég ekki senda hann í skólann. Skólastjórinn sagði brosandi að Daði mætti koma í hinn bekkinn strax daginn eftir. Það var sem þungu fargi væri af mér létt og Daði brosti út að eyrum þegar hann frétti þetta. Ég vildi ekki leggja á hann að fara í gamla bekkinn sinn til Sólveigar til að sækja skóladót sem hann átti þar og fór því sjálf. Sólveig horfði á mig með fyrirlitn- ingu þegar ég kom og spurði hæðn- islega: „Get- ur Daði ekki komið sjálfur að sækja dótið sitt?“ Ég svaraði elskulega á móti: „Nei, ég er hérna til að sækja það fyrir hann.“ Þetta voru síðustu samskipti mín við Sólveigu. Daði steinhætti að fá martraðir eftir að hann fór í nýja bekkinn og lagði ofurást á nýja kennarann sinn, hana Guðbjörgu. Hún var ljúf og yndisleg við öll börnin. Kannski var hún bara venju- leg en kom svona vel út í samanburðinum við Sól- veigu. Guðbjörg sagði mér í foreldraviðtali í vorbyrj- un að hún hefði ekkert yfir Daða að kvarta. Hann tilheyrði frekar þeim hluta krakkanna sem væri í stilltari kantinum. Hún væri satt að segja stein- hissa á andúð Sólveig- ar á honum. Rúmu ári seinna fluttum við til Reykja- víkur og Daði fór í nýjan skóla. Hann hefur verið þar í nokkur ár og aldrei neitt komið sér stundum við dagdrauma en þá dugir alltaf að minna hann góðlátlega á að halda áfram með verkefnið sitt! Það telst ekki neinn glæpur og réttlætir á engan hátt skamm- ir og öskur eins og hann varð fyrir hjá Sólveigu. Hún er eini kennarinn sem hefur nokkru sinni verið vond við hann. Ég upp a vegna hans. Hann stendur sig vel ogfær alltafhrós fyrir góða hegð un. Það ema sem talað er um og getur talist nei- kvætt er að hann gleymir Haraldsdottur sogu sina Solveigu hefur grcinilcga liftirt 111 jö« illa á þcssuni tíina cn í staft |>css aft taka scr \ cikindalrí lct Inin hciskju sína hitna á svni iníniun. Vilt þu deila sögu þinni með okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lífi þínu? Þér er vel- komið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. frétti síðar að aðstæður Sól- veigar hefðu verið erfiðar. Eiginmaður hennar var drykkfelldur og barði hana þegar hann var fullur og eftir að hann varð gjaldþrota, um það bil ári eftir að við fluttum, vildi hann ekki búa lengur á landinu og þau fluttu til út- landa. Henni hefurgreinilega liðið mjög illa á þessum tíma en í stað þess að taka sér veik- indafrí lét hún beiskju sína bitna á syni mínum. Þessi kona var ekki vinsæl í heima- bæ sínum og mörgum þótti hún heldur lélegur kennari. Hún hafði þó aldrei lent í klögumáli fyrr en ég brást til varnar fyrir son minn. Eftir þetta hef ég alltaf hlustað á það sem börnin mín segja mér. Ég tek ekki undir allt sem þau segja en reyni að vega og meta það og hjálpa þeim þegar og ef þau þurfa á að halda. Dóttir mín kvartaði t.d. undan leiðinlegum stærð- fræðikennara í fyrra og að hún lærði ekk- erthjáhonum. Mér fannst þetta ágæt- ur maður, ögn óþolinmóður kannski, en mér fannst gjörsamlega ástæðulaust að tala við hann vegna þessara kvart- ana. Ég bað kunningj akonu mína bara um að taka stelpuna í aukatíma í stærðfræði sem hún og gerði. Einkunnirnar hækkuðu og allir voru ánægðir. I leiiiiilislaii^iO er: Vikan - „LiTsreynshisaj>a“, Seljavej»ur 2, 101 Reykjavík, Nelfang: vikan@frocli.is

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.