Menntamál - 01.09.1941, Qupperneq 9

Menntamál - 01.09.1941, Qupperneq 9
MENNTAMÁL 55 „Nú sé ég og faðma þig, syngjandi vor.“ Það er vorkliður í þessari ljóðlínu: --y-. P m • r rm" p . 1 . < 9 m “1 ^ -0- og er hann ekki íslenzkur? Dálítið unggæðingslegt, eins og kvæðið: „Nú kem ég sem fljúgandi langt út í ljósið og daginn“. Bæði þessi kvæði eru eftir Þorstein Erlingsson. Það virðist, sem Jónas hafi tekið nokkru ástfóstri við kvæði Þorsteins Erlingssonar, likt og Sigv. S. Kaldalóns við kvæði Gríms Thomsens . (sbr. lögin „Á Sprengisandi", „Heimir“, „í Svanahlíð", „Huldur," „Klukknahljóð" o. fl. eftir S. S. K.) Jónas hefir ennfremur samið lag við „Hreiðrið mitt“, eftir Þ. E. Geðþekkt lag. Það hafa nú upp á síðkastið heyrzt raddir um það, að við misnotuðum þjóðsöngva sumra annarra þjóða. Víst er þetta rétt. Það tíðkaðist sem sé hér áður fyrr, meðan við vorum enn fátækir af lögum, að setja kvæði almenns efnis við útlenda þjóðsöngva. Ég ætla ekki að gera þetta að umtalsefni hér, hvorki af hverju þetta stafar, né hve óviðeigandi það er. En hitt vildi ég gjarnan benda á, að það er verkefni fyrir íslenzk tónskáld, að semja lög við íslenzk kvæði, sem sungin eru með útlendum lögum. Ekki svo að skilja, að það eitt sé nægjanlegt tilefni til að semja lag við kvæði, að það hefir áður verið sungið með útlendu lagi. Tónlistin er alþjóðleg list. Útlent lag og íslenzkt kvæði geta orðið svo samtvinnuð i hugum vorum, að naum- ast megi sundur skilja. Og sumum hefir stundum orðið hált á því, að yrkja upp húsgangana. í sambandi við þetta kemur mér í hug lagið „Heyrið vella á heiðum hveri.“ Við syngjum það með finnska þjóð- söngslaginu. Kvæðið er eftir Grím Thomsen. Það er eigin- lega hvorki frumsamið né þýtt. Helzt er hægt að segja,

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.