Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 33

Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 33
MENNTAMÁL 79 fyrir, að þau læri ambögur og málleysur ýmiss konar af bókum, sem þann veg eru gerðar. Og ekki bætir það úr skák, að mál á þeim bókum er venjulega líflaust og innan- tómt og gersneytt þeirri stílfimi og þeim létta leik við orð og hugsun, sem megnar að gæða málið iðandi lífi. Þar er þvi fárra góðra fyrirmynda að vænta. Og ef margar slíkar bækur eru í umferð meðal barna landsins i hundruð- um eða þúsundum eintaka, mega allir sjá, að hér er al- varleg hætta á ferðum. Sú hætta vex þó að miklum mun, þegar þess er gætt, að einmitt á þessu aldursskeiði eru þau sem óðast að heyja sér orðaforða, og það með svo miklum hraða, að hann næstum þrefaldast frá 8 ára aldri til 14 ára aldurs, ef dæmt er eftir rannsóknum Termans. En það er óhugsandi, að börnin geti teygað hreint og ómengað mál af svo gruggugum lindum. Hér getur ekki svo staðið til lengdar. Þennan straum málskemmda verður að stemma að upptökum. Það er líka sá þáttur málverndar, sem við getum ráðið yfir. Foreldrar og aðrir aðstandendur barnanna hljóta að gera þá sanngirniskröfu, að hér verði bót á ráðin. Og það er skylda allra, sem hlut eiga að máli, að sýna fullan þegnskap í þessum sökum og bregðast hér vel Við og drengilega. Flutt i Ríkisútvarpið 27. marz 1941.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.