Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 36
82
MENNTAMÁL
-verði honum æfinlega og alls staðar nálægur og styðji
hann í ábyrgðarmiklum störfum hans.
Frú Helga kemur mér jafnan í hug, er ég heyri góðrar
konu getið; hana reyndi ég svo að öllum hlutum.
Eiðaskóla, 10. október 1940.
Þóroddur Guömundsson.
Iiilja HjöriiNdóttii':
Crnnnliildar Steinsdóttir
kennMlukoiia
Fæd«l 7. apríl 1909, ddin 28. inarz 1941
Ágœta mœr, sem margur virti og dáði,
minnast þín vil ég nú í stuttu Ijóði.
Þakka ég öezt að þinni tryggð ég náði,
þin voru kynni öllum mesti gróði.
Hugðist ég ei þá hryggðarstund að lifa,
harminum knúin — um þig látna að skrifa.
Þöll mun nú ekki þurrum gráta tárum.
Það eru eigi lokaráð sem gilda.
Þeirra, sem eftir sitja nú i sárum,
sviðan það bezt af öllu kynni að milda,
ráði þvl sérhver hyggðist nú að hlita;
helju þig gráta úr, sem Baldur hvíta.
Fegurð og göfgi fóru hjá þér saman,
frjálshuga þœr í öndveginu sátu.
Menntun þú þáðir mikla og bezta framann,
mannkostir allir þá sin notið gátu.
Fegursta grein af göfgum œttarmeiði,
grátperlum döggvað verða mun þitt leiði.