Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 50

Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 50
96 MENNTAMÁL Fulltrúi kennara í ríkisútgáfunefnd: Guðjón Guðjónsson. Varamaður: Aðalsteinn Sigmundsson. í stjórn Menningarsjóðs kennara voru kosin: Margrét Jónsdóttir, Gísli Jónasson og Gunnar M. Magnúss. 32 kennarar sóttu kennaraþingið. Sigurður Thorlacius, hefir nú látið af störfum sem ritstjóri Menntamála. Tók hann við ritstjórn árið 1936 og hafði hana á hendi til ársloka 1940. Eins og getið er um í fréttum frá kennaraþingi, hefir verið gerð tareyting á útgáfustjórn. Fyrsta hefti eftir þá breytingu er minningarhefti um séra Magnús Helgason. Fyrir hönd kennarastéttarinnar þakka Mennta- mál Sigurði þann drjúga skerf, sem hann hefir lagt ritinu á undan- förnum árum. Ljóðabækur. Menntamálum hafa verið sendar þessar ljóðabækur: Sigurjón Friö- jónsson: Heyr'öi ég í hamrinum, I.—II. Akureyri 1939—1940. Margrét Jónsdóttir: Laufvindar blása, Rvík 1940. Jóhannes úr Kötlum: Eitt eilífðar smablóm, Rvílc 1940. — Verður þeirra nánar getið i næsta hefti. Menntamál óska eftir fréttum frá starfi skóla og kennarafélaga víðsvegar um land. Einnig væri æskilegt að fá aðrar fréttir, er snerta menningar- mál þjóðarinnar. RITSTJÓRI: GUNNAR M. MAGNÚSS. Útgáfustjórn: Hannes J. Magnússon, Akureyri; Jónas B. Jónsson, Reykjavík; Ólafur Þ. Kristjánson, Hafnarfirði.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.