Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 17

Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 17
MENNTAMÁL 63 Björgvin Guðmundsson er Vopnfirðingur að ætt. Ungur fór hann til Amer- íku og brauzt þar áfram af eigin rammleik, unz hann hafði vakið svo mikla at- hygli á sér vestra, fyrir tónsmíðar sínar, að ís- lendingar þar í landi styrktu hann til náms á hinum konunglega tón- listarskóla i London. Þar lauk hann prófi með lof- samlegum vitnisburði. Að loknu námi tók hann öfl- ugan þátt í tónlistarlífi Björgvin Guðmundsson Vestur-íslendinga. Árið 1931 fluttist hann heim til íslands og hefir verið söngkennari við skólana á Akureyri síðan. Hann stofnaði Kantötukór Akureyrar og stjórnar honum. Það er nú fjöldi tónsmíða, sem liggur eftir Björgvin Guðmundsson. Auk nokkurra sérprentaðra, laga, hafa kom- ið út eftir hann 3 hefti af safninu „Tónhendur“, alþing- ishátíðarkantatan „íslands þúsund ár“, helgikantatan „Til komi þitt ríki“ o. fl. En margt af verkum hans er í hand- riti, þ. á m. ýms stórverk („Strengleikar“ o. fl.). Og svo hefir Björgvin lagt undir sig ný listasvið með „Skrúðsbónd- anum“, leikriti, sem hann hefir samið, og þá að sjálfsögðu lögin, sem sungin eru í því. Leikrit þetta var sýnt á Akur- eyri í vetur við góðar undirtektir. Það eru ekki tök á að rita hér ítarlega um hinn þjóð- kunna merkismann, ísólf Pálsson. Þeir sem þekktu hann bezt, bregða við mannkostum hans og ljúfmennsku. En allur almenningur þekkti hann bezt af tónverkum hans.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.