Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 44

Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 44
90 MENNTAMÁL Dr. Símon Jóh. Ágústsson flutti 12 erindi um uppeldismál í útvarpið í vetur. Voru erindin flutt að tilhlutun fræðslumálastjórnarinnar. Verðhækkun á pappír og prentvinnu er gífurleg frá stríðsbyrjun. Útgáfukostnaður allra blaða og tímarita hefur því stóraukizt. Er heitið á unnendur Menntamála að afla ritinu nýrra kaupenda, bæði innan stéttarinnar og utan hennar. Árgjald Menntamála er mjög lágt, aðeins fimm krónur, og mun ekki hækka að svo stöddu. Það ætti að vera mögulegt að auka útbreiðslu ritsins, og væri vel, ef hver kennari sendi einn nýjan áskrifanda. Ekki er til mikils mælzt. Gaman verður að sjá, hverjir fyrstir bregða við og sinna þessari hógværu málaleitun. Barnadagurinn í Reykjavík. Sumardagurinn fyrsti hefir mörg undanfarin ár verið helgaður börnunum, svo sem kunnugt er. Fjársöfnun hefir farið fram þann dag til styrktar félögum, sem hlynna að börnum. í Reykjavk hefir Barna- vinafélagið Sumargjöf haft forystu í hátíð dagsins, með aðstoð skóla og kennara. Skrúðgöngur barna undir fánum, með hljómsveit i broddi fylkingar, hafa sett svip á bæjarbraginn þennan dag. Þúsundum saman hafa þau streymt áfram eins og móða, sem bakkafyllir farveg sinn. Það hefir verið eins konar sýning á börnum höfuðstaðarins þennan dag. Margur fullorðinn hefir hrifizt með og hugleitt mál barn- anna. í ár voru hátíðahöldin með daufari blæ en fyrr. Skrúðgöngur barna og útisamkomur voru bannaðar, sökum hernámsins og yfirgnæf- andi árásarhættu, að sagt var. Innisamkomur voru leyfðar. Um sömu mundir fréttist, að leyfðir mundu vera knattspyrnukappleikir á íþrótta- vellinum, enda hafa margir slíkir kappleikir verið haldnir, þegar þetta er ritað, að viðstöddum mörg þúsund áhorfendum. Geta útvarpshlust- endur fylgzt með, þegar knattspyrnufélögin auglýsa í útvarpinu leiki sína og egna mjög til sóknar. Skipulagið og aðgæzlan virðist nokkuð af handahófi í þessum efnum. Borgarbörn í sveit. Sumardvalarnefnd, sem skipuð var af ríkisstjórn og Rauða Krossi íslands, hefir starfað að því að útvega börnum og mæðrum úr stærstu bæjum landsins dvalarstaði í sveit yfir sumarmánuðina. Starfið var hafið í aprílmánuði, en í byrjun júní hafði nefndin ráðstafað 1500— 1600 börnum og mæðrum, rúmlega helming á barnaheimili, sem stofnuð

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.