Menntamál - 01.09.1941, Side 12

Menntamál - 01.09.1941, Side 12
58 MENNTAMÁL mikið af vinsældum sínum á kvæðið laginu að þakka? „Rökkurró“ eftir ísólf, er ljómandi lag. Það er kvöld- kyrrðin innan fjögra veggja, sem það minnir oss á. Sagna- lestur og söngur, sátt og samlyndi, ofnhiti og lampaljós. En úti er „vindsvalur vetur“. „Austurfjöll“. Það er heiðríkja íslenzku fjallanna, sem er í hug tónskáldsins, er hann semur þetta lag. Því er ekki að neita, að tilefnið til þessara hugleiðinga, er aðallega hin mörgu tónskáldaafmæli á síðastliðnum vetri þ. e. a. s. afmæli þeirra tónskálda, sem stóðu á tug, því að vitanlega eiga tónskáld afmæli einu sinni á ári eins og aðrir menn, nema þeir, sem fæddir eru á hlaup- ársdegi. En það var einmitt frá veturnóttum til sumarmála að nokkur íslenzk tónskáld áttu áratugs afmæli. Árni Thorsteinsson varð sjötugur 15. október. Friðrik Bjarna- son átti sextugsafmæli 27. nóv. En eftir áramótin urðu þeir sextíu ára Sigvaldi S. Kaldalóns og Jónas Tómasson, Sigvaldi 13. jan. en Jónas 13. apríl. Björgvin Guðmundsson fyilti fimmta tuginn 26. apríl. Loks hefði ísólfur heitinn Pálsson orðið sjötugur 11. marz, hefði hann lifað, en hann andaðist 17. febrúar, eins og kunnugt er. Ég hefi því tekið dæmi eingöngu úr verkum þessara höf- unda. En vitanlega hefði verið hægt að leita víðar eftir dæmum. Það væri t. d. annað hugleiðingarefni að athuga, hve þjóðleg eru lög þeirra tónskálda okkar, sem nú eru hætt að yrkja, þeirra, sem safnaðir eru til sinna feðra — komnir undir græna torfu. Og í þriðja lagi. væri vert að hugleiða og gera sér ljóst, hvert er þjóðlegt gildi verka yngstu tónskáldanna okkar. Góðir íslendingar! Athugið þetta, sem flestir. Kunn- áttumenn á sviði tónlistarinnar, segið okkur, að hvaða niðurstöðu þið komizt. Þeir atburðir gerast á okkar tímum, sem vissulega ættu að brýna fyrir okkur að gera okkur fulla grein fyrir þjóðlegum verðmætum, á hvaða sviði, sem þau eru .

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.