Menntamál - 01.09.1941, Side 19

Menntamál - 01.09.1941, Side 19
MENNTAMÁL 65 yfir öll fjöll. Þá detta manni í hug orð Steingríms: „Svo undurblítt ég aldrei hefi, af ómi töfrast neinum.“ — ís- lenzk tónlist á hér mikið verkefni fyrir höndum, aö leysa * úr læðingi, í voldugum hljómkviðum, töfra íslenzkrar náttúru, lifandi og dauðrar." — (Sbr. Menntamál, VIII. árg. bls. 45.) Og ennfremur (sbr. Heimir, söngmálablað, 1939, bls. 6): „Vorkvöldin komu seiðmögnuð og full af hljómum inn um opinn gluggann minn, er ég var lagstur hlustandi til hvíldar. Þá heyrði ég það, hvað nátúran okkar syngur með fjölbreyttum róm, og nú veit ég, hve mikið á eftir að leysa úr læðingi af íslenzkri tónlist og það í stórum form- um, þegar fallast í faðma dulræn náttúran og seiðmagn- aðar þjóðsagnir........ Fallega yrkir finnski snillingurinn Sibelius um land sitt (Finnlandia) og mikill er óður Smetana um Moldá, hið mikla fljót Bæheims. Eru ekki hér í okkar landi raddir náttúrunnar, lifandi og dauðrar, efni í álíka tónverk? Þegar sá tónsnillingur kemur, sem tekst að túlka þær raddir í stórum tónlistarformum, er auðvitað æskilegt og nauðsynlegt að andi þjóðlaganna svífi þar yfir vötnunum. En ekki er það nóg, til þess að íslenzk tónverk séu þjóðleg, að þau séu raddsett með hreinum fimmundum eða í þeim komi fyrir stækkaðar ferundir eða önnur óþægileg tón- bil. — Það er hyggja mín, að þegar tónlist okkar hefir enn vaxið fiskur um hrygg, og farið verður að meta gildi henn- ar, verði einmitt mörg af þeim lögum, sem ég hefi nefnt hér, og fleiri af lögum þeirra höfunda, sem ég hefi nú minnzt á, og annarra tónskálda okkar, þótt ekki séu hér nefnd, einmitt talin í flokki með þeirri list, sem talin verð- ur þjóðleg, íslenzk tónlist. 5

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.