Menntamál - 01.09.1941, Síða 22
68
MENNTAMÁL
myndar um alla rausn og prýði. Þeir eru orðnir margir,
sem á þessu tímabili hafa notið gestrisni ykkar og glað-
værðar, er seint mun gleymast. Allan þennan tíma hafið
þið lagt stóran skerf til menningarmála í þessu byggðar-
lagi og nú síðast sýnt hug ykkar og velvilja til æskulýðs
þessa kauptúns, með því að ánafna barnaskólanum öllu
bókasafni ykkar, sem bæði er mikið að vöxtum og gæðum.
Fyrir allt þetta flytjum vér ykkur vort innilegasta þakklæti.
Sem lítinn vott þess, hvers vér metum hina höfðinglegu
gjöf ykkar, afhendum vér ykkur vísi að sjóðsstofnun, sem
beri nafn ykkar og á sínum tíma skuli varið til viöhalds
og aukningar bókasafni barnaskólans, eftir nánari reglum,
er þið setjið þar um.“
Er gjöfin frá þeim Stykkishólmsbúum þegar orðin fullar
1000 krónur, og má gjöra ráð fyrir, að sjóðurinn haldi
áfram að vaxa, bæði við gjafir og áheit.
Það er vel, að nöfn þeirra hjóna geymist þannig um
aldir í sögu Stykkishólms. Þau eru ágæt og merk, enda
af góðu bergi brotin. Má rekja kyn frú Ásgerðar að Heiði i
Gönguskörðum, og er það ætt þeirra séra Sigurðar í Vigur
og Stefáns skólameistara. En ætt Ágústs í föðurkyn er ætt
Tómasar Sæmundssorrar. Verður seint fullba^kítð starf
þeirra fyri&-Stykkisháttn->bg héraSið umhverfis. Það er því
sannmæli,'er Jakob Thorarensen kveður til þeirra á gull-
brúðkaupsdaginn: \"
Öótt ýmsir telji að fjari út fornar dyggðir
og feyru slái á drengskaparins brag,
um Snæfellsness- og Breiðafjarðarbyggðir
til brúðkaups þessa gull mun sent í dag —
það gullið skíra, er geyma vinahugir,
og gjöld þess skyldu vel af hendi reidd.
En engu betur annað gull þar dugir,
svo ykkur verði héraðsskuldin greidd.
Þau hjón hafa nú samið skipulagsskrá fyrir sjóðinn, og
er hún á þessa leið: