Menntamál - 01.09.1941, Qupperneq 38

Menntamál - 01.09.1941, Qupperneq 38
84 MENNTAMÁL maður, og stóð í fylkingarbrjóstl hinnar ungu og veigalitlu stéttar, fyrstu tugi þessarar aldar. Það þurfti nýta menn og ósérhlífna, til þess að standa af sér aðkast hinna svip- ulu vinda, er léku um forystumenn uppeldismálanna á þeim tímum. Hallgrímur hafði margt til síns ágætis: hann var eldheitur umbótamaður, gáfaður, snjall í máli og ekki hlédrægur, fórnfús í starfi og vildi vel. Einlægan og hlýjan hug hefur hann jafnan borið til samtaka stéttar sinnar, svo sem sjá má af fjárhæðum, sc;m hann hefur tvívegis gefið til Kennarasambandsins. Á síðari árum hefur Hall- grímur gerzt hlédrægur á opinberum vettvangi um mál kennara. Auk kennslustarfa hefur Hallgrlmur Jónsson fengist við fjölmörg verkefni, bæði í félagastaifsemi og á öðrum vett- vangi. Verður það eigi rakið héi. Þá var hann allmikil- virkur rithöfundur um skeið, og orti bæði í bundnu máli og óbundnu, svo sem kunnugt er. Hallgrímur er kvæntur Vigdísi Erlendsdóttur frá Álfta- nesi. Börn Hallgríms á lífi eru þessi: Fríða kennari, María læknir, Meyvant prentari og Anna kennari. Menntamál óska Hallgrími og fjölskyldu hans allra heilla í framtíðinni, og þakka honum, fyrir hönd kennarastétt- arinnar, ágætt brautryðjandastarf í þágu uppeldismála landsins. Vonandi gefst Hallgrími nú kostur að sinna öðrum hugö- arefnum sínum, skáldskap og leitinni á andlegum sviðum, en að því hefur hugur hans hneigst um langt skeið.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.