Menntamál - 01.09.1941, Page 40

Menntamál - 01.09.1941, Page 40
86 MENNTAMÁL r A Tiðavan^i „Aiþýðubiblían“ í Þýzkalandi. Nýjustu fregnir geta um biblíu, sem er komin út í Þýzkalandi. Er þetta endurrituð Heilög ritning, en lagfærð eftir þörfum, til þess að sanna hina réttu stefnu þjóðemisstefnunnar þýzku og hreinleika aríanna. „Biblía" þessi er gefin út af hinum svonefndu „Thiiringer- kristnu", og er „árangur af samvinnu vísindasinnaðra guðfræðinga, starfandi presta og þýzks kvenrithöfundar, sem hefir veitt aðstoð í málfræðilegum efnum“. „Biblían“ inniheldur meginkafla Nýja-testa- mentisins, en Gamla-testamentið er lagt til hliðar og ekki birt. Sem dæmi um kenningar hinnar nýju „Bibliu" er eftirfarandi smáklausa: — Það getur ekki verið rétt, að Jesús sé fæddur í Betlehem í Júdeu. Nei, hann er borinn í Galíleu. Þar voru mörg þjóðabrot saman komin og blönduð og „ekkert er því til fyrirstöðu, að foreldrar Jesú hafi getað verið aríar". Þannig er á mörgum stöðum hagrætt hinum gömlu orðum og málsgreinum. Þar sem orðin „sonur Davíðs" eða „borg Davíðs" koma fyrir i sambandi við Jesú, eru þau annaðhvort þurrkuð út í þessu nýja riti eða önnur orð sett í staðinn. Ekki hefur þessi nýja „Biblía" þó náð einróma vinsældum í Þýzka- landi. Kirkjuritið „Ung kirkja“ hefir hafið skarpa gagnrýni á hina nýju „Biblíu". Nýtt blóð. Dr. Alexis Carrel, hinn heimskunni höfundur bókarinnar: Maður- inn óþekktA, hefir nýlega látið til sín heyra um uppeldismálin. Dr. Carrel hefur hlotið Nobelsverðlaun, hann starfaði við Rockefellerstofn- unina í Bandarikjunum, en þegar hann lét þar af störfum, fluttist hann til Prakklands, og bjó þar um skeið. Eftir fall Frakklands í nú- verandi heimsstyrjöld, hvarf hann aftur til Ameríku og dvelur þar nú Dr. Al. Carrel segir, að nýskipum í háttum manna sé nauðsynleg. Hver einstaklingur þarf að byggja upp fagurt líf sitt og gott, með því að leggja rækt við hina ævarandi þrenningu mannlegra eiginleika: lik- amlega, andlega og siðferðilega. Vilji einstaklingurinn eignast varanlega lífsgleði og láta góðvilja sinn og gáfur styðja menningarviðleitnina, þarf hann fyrst og fremst að vera allsráðandi yfir hinum fyrmefndu hæfi- leikum. Afdráttarlaus sjálfsagi, árum saman, á öllum sviðum, getur hjálpað manninum til þess að komast út fyrir meðalmanns takmark- anir. Menn verða að hafa ákveðið mark, fylgja ströngum reglum, sigrast á nautnum og stundarþægindum, lifa ekki fyrir matargæði,

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.