Menntamál - 01.10.1952, Side 15
MENNTAMÁL
85
að svo sé. Tveir heimavistarbarnaskólar hafa um mörg
ár starfað á Vesturlandi, skólinn í Reykjanesi við ísa-
fjarðardjúp og að Finnbogastöðum í Árneshreppi. í Mos-
vallahreppi í Önundarfirði hefur heimavistarskólahús
verið í byggingu seinustu árin. Er þess að vænta, að
byggingu þess verði lokið næsta ár, svo að skóli geti tekið
þar til starfa.
Á Reykhólum í Barðastrandarsýslu er beðið eftir fjár-
festingarleyfi til byggingar á heimavistarskóla handa
tveim hreppum eða fleiri. Undanfarna vetur hefur barna-
skóli Reykhólaskólahverfis starfað að Reykhólum og
börnin búið í heimavist í sundlaugarskálanum, sem er
mikið og gott hús.
Síðast liðið sumar flutti landsíminn stöð sína frá Borð-
eyri inn að Hrútafjarðará. Bæjarhreppur keypti þá hús
landsímastöðvarinnar á Borðeyri í þeim tilgangi að hafa
þau fyrir skólahús handa hreppnum. Bæjarhreppur er
barnmargur og þar hefur alltaf verið farkennsla við frem-
ur erfið skilyrði. í landsímahúsinu, sem áður hafði verið,
var svo komið fyrir heimavist og kennslu síðast liðinn
vetur. Þótt húsið væri hvergi nærri til þess sniðið, reynd-
ist þetta vel, svo að ánægja varð með breytinguna. í sum-
ar verður húsinu breytt til skólahaldsins, og verður þarna
framvegis heimavistarskóli Bæjarhrepps. Ef til vill koma
þarna einhverjir hreppar til samvinnu.
f Dalasýslu eru átta skólahverfi, og hefur lengst af
verið farkennsla í þeim öllum, oft við hin lélegustu skil-
yrði. í þessari sýslu er ekkert skólahús til. Tvo til þrjá
heimavistarskóla þyrfti fyrir alla sýsluna. Að Laugum í
Sælingsdal er gnægð af heitu vatni. Þar reistu ungmenna-
félagar sýslunnar yfirbyggða sundlaug og skála fyrir um
það bil tuttugu árum. Seinustu árin hefur eitt skólahverfi
sýslunnar fengið að hafa heimavistarskóla í húsnæði sund-
laugarinnar um fjögurra mánaða tíma hvern vetur. Flest-
um aðkomandi mönnum mun finnast Laugar valinn staður