Menntamál - 01.10.1952, Side 29
MENNTAMÁL
99
tómri tómstundavinnu. Eftir hann liggja ýmsar kennslu-
og handbækur í þessum fræðum, sem mjög hafa verið
notaðar í skólum, Setningafræði, Ritreglur og Stafsetn-
ingarorðabók. Þá verður Freysteini seint þakkaður sá
greiði, er hann gerði íslenzkri tungu með útgáfu sinni á
Dansk-íslenzkri orðabók, svo mjög jók hann við verk fyrir-
rennara sinna á þeim vettvangi.
Þótt lærdómur Freysteins sé mikill í reglum og rúnum
tungunnar, er ekki minna vert um smekkvísi hans á blæ-
brigði hennar og tök hans á auði hennar. Allt, sem hann
lætur ritað frá sér fara, er gert af hagleik. Ræður hans
og greinar eru fagurlega samdar. Enn fremur liggja eftir
hann margar góðar þýðingar. Hafa Nonnabækurnar í
búningi hans vakið fögnuð í mörgu ungu sinni.
Kynni mín af Freysteini skólastjóra eru einkum runnin
frá þeim árum, er ég kenndi við Kennaraskólann undir
stjórn hans. Hann var Ijúfmannlegur húsbóndi og nota-
legur samstarfsmaður. Hnyttileg gamanyrði eyddu oft-
lega gráma verkdagsins í návist hans.
Kvæntur er Freysteinn Þorbjörgu Sigmundsdóttur úr
Reykjavík, og eiga þau tvö mannvænleg börn.
Á. H.