Menntamál - 01.04.1958, Qupperneq 32
26
MBNNTAMÁL
þegar skólinn kom í nýja húsið, og nemendum fjölgaði
um meira en helming. En meðan skólinn var til húsa í
Grænuborg, gerði ég þetta jafnan sjálfur, og skapaðist
við þær athuganir það form, sem nú er stuðzt við.
Eftir kynningardagana þrjá hefst skólastarf almennt
fyrir alla aldursflokka. En þeir eru þrír, þ. e. a. s. 6, 7
og 8 ára börn.
Og nú byrjar tímabil í skólanum, sem kalla mætti:
Frjálsar vikur, og eru þær venjulega þrjár. Reynt er
þá að haga skólastarfinu þannig, að börnin verði sem
minnst vör við umskiptin, komin úr frelsi sumarsins, frá
heimilinu í skólann. Á þetta við alla aldursflokkana, en
sérstakrar nærfærni er gætt við yngsta aldursskeiðið, sex
ára börnin. Fyrstu dagana er börnunum í yngstu bekkj-
unum kannske skipt í tvo hópa, og dvelur þá hvor hópur
aðeins helming skólatímans hvern dag. Skólatíminn þreyt-
ir þá ekki, og kennarinn fær persónulegri kynni af börn-
unum. En frjálsu vikurnar er skólastarfið í léttum tón
hjá öllum aldursskeiðunum. Góðar venjur eru æfðar á
göngum og leiksviði, talað um þetta og teiknað, sungið,
starfað og leikið. Átthagafræðivinnubrögðin eru í önd-
vegi, þ. e. a. s. alhliðaþroskandi athafnir og námsstörf.
Og viðfangsefnin eru óþrjótandi og allt í kring, tekin
framan af beint frá reynslu barnsins og umhverfi þess.
Margvíslegur efniviður er fyrir hendi og unnið í sam-
ræmi við það: Teiknað, mótað í leir, lagt með pinnum,
leikið og lært með mislitum perlum frá Reykjalundi, bæði
fyrir stafi og í þágu stærðfræðiiðkana, hlutir gerðir úr
pappír (pappírsbrot), klippt, límt, föndrað o. s. frv. Allt
er starfið kryddað söng og sögum, ekki aðeins kennar-
ans, heldur einnig barnanna, og hlutur barnanna vex
með vaxandi getu þeirra.
Sérhver skóladagur þarf að vera hamingjudagur fyrir
hópinn og hvert einstakt barn, hver stund gleðistund,
sem þokar öllum eitthvað áfram á göngunni til góðs „göt-
una fram eftir veg“.