Menntamál - 01.04.1958, Page 55
menntamál
49
í ljós. Einnig segir skýrslan frá umræðum á þriðju al-
þjóðaráðstefnunni um fyrirkomulag tæknilegra tilrauna.
Ráðstefna þessi var haldin í október árið 1956 í Wien að
tilhlutun framleiðniráðs Evrópu. Á ráðstefnu þessari voru
fulltrúar frá flestum löndum Vestur-Evrópu, Kanada og
Bandaríkjunum. Skýrslan varar við, að fyrrnefndum lönd-
um bætist árlega of lítið við af vísindamönnum og verk-
fræðingum (engineers). Ekki má líta of smáum augum á
þá hættu, sem þessi staðreynd felur í sér.
Tæknilegar framfarir, sem eru aðalþátturinn í bættum
lífskjörum og öryggi eru að miklu leyti komnar undir
því, að nægilegt starfslið vel hæfra manna sé fyrir hendi.
Verkefnið á næstu árum er því það, að þjálfa og mennta
nógu marga vísindamenn og verkfræðinga. Engin hætta
er á, að of margir verði vel menntaðir. Þessi fullyrðing
er byggð á rannsókn nefndarinnar á eftirspurn og fram-
boði á sérmenntuðum mönnum. Rannsóknin sýndi, að alls
staðar er skortur.
Ríkisstjórnir og fræðsluyfirvöld þyrftu að reyna að sjá
yfir langt tímabil í einu. Það er ekki nóg að mennta menn
í allar lausar stöður, sem eru á hinni líðandi stundu. Ekki
ftiá gleyma framtíðinni. Varað er við þeirri hættu, að
ákvarðanir um stöðuval séu teknar eingöngu eftir þeim
tækifærum, sem líðandi stund býður, oft á tíðum skamm-
vinnar þarfir, sem stafa af stjórnmála- eða efnahags-
öngþveiti.
Sem dæmi bendir nefndin á þetta: Eftir síðari heims-
slyrjöldina var víða of mikið af verkfræðingum. Þess
Vegna var ungt menntafólk hvatt til að velja sér frekar
Önnur viðfangsefni. Áhrif þessa reyndust miður góð, þeg-
ar fram liðu stundir.
Skýrslan fjallar sérstaklega um skort á vel menntuðum
kennurum. Skortur á þeim er svo tilfinnanlegur, að víðast
hvar hefur jafnvel almenningur veitt því eftirtekt. Aftur
á móti hafa menn ekki séð og skilið eins vel þau beinu
áhrif, sem verða af hinum geysilega skorti sérmenntaðra