Menntamál - 01.02.1970, Side 25

Menntamál - 01.02.1970, Side 25
6. Þekking á náttúruöflum og hagnýting tækni knýr fram breytingar á félagsskip- an og einkalífi manna. Þróunarsamfélagi er nauðsyn á skipulegu mati þeirra fram- vindu. Sérfræðingar sálfræðiþjónustu skóla eru öðrum fremur ráðgjafar fræðslu- yfirvalda um mat og mótun nýrra hug- mynda og breytinga, sem til álita koma í fræðslu- og skólamálum. Skipulag og starfsmenn. 1. Starfsmenn sálfræðiþjónustu eru sálfræð- ingar, félagsráðgjafar og kennarar, allir með framhaldsmenntun á sérsviði. Lækn- ar skulu starfa sem ráðgefandi aðilar, ásamt öðrum sérfræðingum. 2. Heimilt skal að ráða til starfa í sálfræði- miðstöð einn sálfræðing fyrir hverja 2.500 nemendur á skyldunámsstigi og einn fé- lagsráðgjafa og einn kennara fyrir hverja 5.000 nemendur. Fræðsluhéruð geta ráð- ið fleiri starfsmenn, en greiða þá sjálf laun þeirra. 3. Starfsmenn vinna bæði í rannsóknarmið- stöð og í föstum viðtalstímum í skólunum, skv. nánari ákvæðum viðkomandi fræðslu- ráðs og forstöðumanns og í samræmi við ákvæði í reglugerðum. 4. Handleiðslustörf og ráðgjöf, sem unnin er í skólanum, eru undir stjórn skólastjóra, en störfin skal vinna í samráði við sér- fræðinga sálfræðimiðstöðva. 5. Sálfræðimiðstöð er bakhjarl og fræðileg aflstöð ráðgjafar í skólum. Hana skal reka í tengslum við fræðsluskrifstofur. Starfs- lið og sérfræðileg verkefni ráðast af að- stæðum, sem fræðsluyfirvöld í heimahér- uðum og menntamálaráðuneyti meta. 6. Sálfræðimiðstöðvar skóla hafa sömu stöðu stjórnunarlega í skólakerfinu og einstakir skólar gagnvart viðkomandi fræðsluráði, sveitarstjórnum og mennta- málaráðuneyti. Forstöðumaður sé full- gildur aðili á fundum skólastjóra í um- dæminu og eigi rétt til setu sem áheyrnar- fulltrúi í fræðsluráðum. 7. Laun og kostnaður greiðist eins og annar kostnaður við skólahald. Heimilt er sveit- arfélögum að sameinast um rekstur stöðva eða einstökum fræðsluhéruðum að semja við stöðvar um þjónustu. 8. Sálfræðistöðvar skulu vera deildskiptar, þar sem fjöldi starfsmanna leyfir, þ. e. skólasálfræðideild barnastigs, ráðgjafar- deild unglinga og gagnfræðastigs og kennslufræði- og tilraunadeild. Nefnist stöðin þá sálfræði- og kennslu- fræðimiðstöð (Pedagogisk Centrum). MENNTAMÁL 19

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.