Menntamál - 01.02.1970, Blaðsíða 28

Menntamál - 01.02.1970, Blaðsíða 28
Ráðgjöf í framhaldsskólum Almenn atriði. 1. Handleiðsla og ráðgjöf eru mjög vanrækt á framhaldsskólastigi. Þörfin er þó enn brýnni þar en á barnastiginu. Ástæður þess eru m. a.: Unglingsaldur reynist flestum erfitt að- lögunarskeið. Unglingar, búnir mjög ólíkum hæfileikum, eru nánast tilneyddir allir að sækja skóla allt til 17—18 ára aldurs. Þjóðfélagið verður margbreytilegra, reynt er að fjölga námsbrautum og bjóða val- greinar. Valið og fjölbreytnin krefst kynn- ingar og leiðsagnar. Kennarar í framhaldsskólum hafa flestir minni kennslufræðilega og sálfræðilega menntun en barnakennarar. Fagkennsla gerir manneskjuleg kynni nemenda og kennara erfiðari en þegar sami kennari kennir margar greinar. 2. Ráðgjöf í framhaldsskólum krefst annarra starfshátta en í barnaskólum, því veldur m. a. aldur nemenda, námsefni og þar með breyttir kennsluhættir. Persónulegur og félagslegur vandi unglinga er allur annar en barna, einkum samskiptin við foreldra, kennara og félaga. 3. Ráðgjöf í framhaldsskólum má greina í þessa þætti: a) Námsleiðsögn (educational guidance). b) Starfsleiðsögn (vocational guidance). c) Sálfræðiráðgjöf (psychological coun- seling). Eins og endranær er talið sjálfgefið að handleiðslustefna (guidance) móti kennslu og daglegt skólastarf. 4. Starfsfræðsla sem kennslugrein er hér ekki talin til þátta ráðgjafar, þótt hún sé í sérstöðu að þessu leyti og tengdari nemendaráðgjöf en aðrar námsgreinar. 5. Skólaráðgjafi annast náms- og starfsleið- sögn. Hann vinnur starf sitt í skólanum MENNTAMÁL 22

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.