Menntamál - 01.02.1970, Qupperneq 26
9. Þar sem unnt reynist aS mynda sálfræði-
lega- og kennslufræðilega miðstöð
(Reykjavík) skal hún eiga samvinnu við
mennta- eða rannsóknarstofnanir, sem
annast fagmenntun kennara eða vinna að
rannsóknum í þágu skóla og kennslu-
aðferða.
Starfið í skólunum.
1. Starfsfólk hvers skóla myndi það, sem
hér er kallað ,,menntunarsamfélag“. í því
felst stöðug viðleitni kennara skólans,
undir forystu skólastjóra að halda and-
legri og starfslegri hæfni, fylgjast með
nýjungum, deila hugmyndum og reynslu.
2. Skólastjóri veiti sálfræðiþjónustu, nem-
endavernd og ráðgjöf brautargengi innan
veggja skólans. Örugg forysta skólastjóra
og stöðug örvun bæði kennurum og sál-
fræðingum, sem vinna við skólann, er
frumskilyrði til starfa í þessum anda.
3. Faglegt starf sérfræðinga í skólanum er
m. a. fólgið í eftirfarandi:
a) Miðlun vitneskju og ráðgjöf um ein-
stök rannsökuð börn og umræður um
önnur, sem áhyggjum valda.
b) Ráðgjafar, sem til þess hafa hæfi, leið-
beina um ,,grúppudynamic“, í bekk, mót-
un viðmóts við félagslega eða geðrænt
afbrigðileg börn, ræðafagleg starfsvanda-
mál kennara o. s. frv.
c) Fundir af ýmsu tagi fyrir kennara
bekkjadeilda í sama árgangi, leiðbeining-
ar um nám og foreldrafundir. Einnig sam-
talsfundir foreldra og kennara og loks
„grúppu“-fundir af ýmsu tagi og á ýmsum
stigum, sem kennarar mynda að eigin
frumkvæði. Haldnir yrðu fundir með nem-
endum.
d) Skólasálfræðingur ræðir við einstök
börn, athugar í skólunum nám og e. t. v.
hæfileika, bæði inni í bekk og í vinnustofu
í skólanum.
e) Aðalsamstarfsmenn sérfræðinga frá
miðstöð í barnaskólanum eru kennarar
afbrigðilegra nemenda með framhalds-
menntun, svo sem talkennarar, sem oft
yrðu einnig forstöðumenn lesstöðva eða
leshjálpar. Þessir sérmenntuðu kennarar
yrðu sálfræðingum í barnaskólum svip-
aðir hjálparmenn og skólaráðgjafar eru
í framhaldsskólum.
MENNTAMÁL
20