Menntamál - 01.02.1970, Page 29
undir stjórn skólastjóra, en nýtur fag-
legrar umsjónar frá sálfræðiráðgjafa.
6. Sálfræðiráðgjafi vinnur mest af starfstíma
á sálfræðimiðstöð fræðsluumdæmisins.
Hann hagnýtir gögn og upplýsingar um
einstaka nemendur frá barnaskóladeild
stöðvarinnar.
Verkefni skólaráðgjafa.
1. Skólaráðgjafar starfa í framhaldsskólum.
Einn skólaráðgjafi í fullu starfi annast
400—500 nemendur. Á skólaráðgjafa hvíl-
ir, ásamt skólastjóra og sálfræðiráðgjafa,
mótun og framkvæmd uppeldisstarfs,
nemendaverndar og ráðgjafar í skólan-
um.
2. Trúnaður og gagnkvæmt traust nærist af
greiðum andlegum samskiptum milli ein-
staklinga. Miðlun og tjáning eru því lífæð-
ar ráðgjafar. Skólaráðgjafi leggur höfuð-
áherzlu á að tryggja og halda opinni sam-
starfsleið milli nemenda og kennara, for-
eldra og kennara og kennara sín á milli.
Hann er því miðdepill í „menntunarsam-
félagi“ skólans.
3. Af einstökum verkefnum eru þessi helzt:
Skráningarkerfi, einfalt og ýtarlegt, náms-
mat, aðstoð til kennara við samningu
prófa og úrvinnslu, örvun samskipta,
miðlun fræðslu og upplýsinga milli nem-
enda, kennara og foreldra. Skólaráðgjafi
veitir öllum nemendum tækifæri til við-
tals. Hann skipuleggur fjöldaleiðsögn um
val kjörgreina og námsbrauta og annast
sérstaklega persónulegar leiðbeiningar
um starfsval. Skólaráðgjafi annast fram-
kvæmd sálfræðilegra hópprófa og starfs-
valsprófa, ef notuð eru í skólanum. Hann
stuðlar að námsleiðbeiningum í skólan-
um, bæði með bæklingum og munnlegum
upplýsingum.
4. Skólaráðgjafi hlustar á og kynnir sér
persónuleg geðræn vandamál skjólstæð-
inga og vísar til sálfræðinga, lækna og
annarra sérfræðinga, ef þess er þörf.
Menntun skólaráðgjafa.
1. Reynsla sýnir, að gagnslaust er eða skað-
legt að ráða skólaráðgjafa, ef þeir kunna
lítil skil á verkefnum sínum.
2. Mannlegir eiginleikar eru mikilvægir, en
2—3 ára háskólanám ásamt 3—5 ára
kennslureynslu, ræður úrslitum um hæfi
til starfs.
3. Sérfræðinám skólaráðgjafa er innan nokk-
urra greina uppeldissálfræði. Má nefna
sálfræði námsins og einstaklingsmun
manna. Nauðsyn er kunnáttu í tölfræði,
gerð prófa og notkun, undirstöðutækni í
ráðgjöf og samtalstækni og loks innsýn
í ávirk öfl geðlífs bæði hjá einstaklingum
og hópum.
4. Æskilegt er, að skólaráðgjafi hafi lokapróf
í sálfræði ásamt kennslureynslu. Óraun-
sætt virðist, að svo stöddu að gera mag-
isterpróf í sálfræði að skilyrði til starfs-
ins.
5. Þar til nægilega margir sálfræðingar fást
til starfsins, skal ráða til þess kennara
með kennslureynslu, sem afla sér mennt-
unar í vissum greinum uppeldis- og
ráðgjafarsálfræði. Kennarasamtökin og
menntamálaráðuneytið skipi nefnd trún-
aðarmanna, til að velja menn til starfa á
þessu sviði og síðan verði þeir studdir
til sérnáms og starfsþjálfunar.
MENNTAMÁL
23