Menntamál - 01.02.1970, Blaðsíða 30
r \
Handleiðsluþættir kennslu Bekkjarkennari gegnir mjög miklu hlutverki við nemendaráðgjöf. Kennari stuðlar að eftirfarandi:
1. Skapar bekkjarbrag, sem gerir námið og kennsluna að sameigin- legu verkefni nemenda, kennara og foreldra.
2. Hjálpar nemenda að ráða fram úr vandamálum tengdum félags- og efnahagslegri stöðu fjölskyldu hans.
3. Aðstoðar nemanda að velja vitandi vits og með fullri gát þá kosti, sem skólinn býður.
4. Aðstoðar nemanda að glöggva sig á hæfileikum sínum og dýpka áhugasvið sín.
5. Velur og aðhæfir kennsluaðferðir, sem bezt eru við hæfi hvers einstaks nemenda, að því er við kemur greind, áhugamálum og sér- hæfileikum.
6. Temur nemanda heppilegar náms- og vinnuvenjur.
7. Sinnir þörfum nemanda fyrir sér- staka aðstoð sérfræðinga.
Kunnugleiki og skilningur á nem- anda bæði í hópi og einslega, er for- senda þess, að kennari ræki framan- greind verkefni. Raunhæf miðlun upp- lýsinga milli þeirra, sem sinna um hagi nemanda, er frumskilyrði. Reglu- legir fundir í þessu skyni geta verið gagnlegir.
Glefsur úr niðurstöðum brezkra kennara og ráðgjafa á ráðstefnu Evrópuráðs í Palma, aprll 1969, um hand- leiðslu og ráðgjöf í skólum.
V J
MENNTAMÁL
24